Main | september 2005 »

ágúst 31, 2005

Verðlag í Lima

Þakkir fær Davíð fyrir að redda okkur (kbdic.kbd) lyklaborðsuppsetningu fyrir windows 98se. Nú getum við skrifað með Íslenskum stöfum, jé!

Hér í Lima er ROSA gott að vera. Fólkið er vinalegt, margt fallegt að skoða og jú maturinn ódýr.

Gjaldmiðillinn hér er Soles og formúlan til að finna íslenskt verð hratt og örugglega er með því að margfalda með 20. En fyrir okkur sem eru ekki súperbrain er gott trick að bæta við einu núlli og segja síðan sinnum tveir, en það virkar jú eins.

Til þess að segja ykkur aðeins hvað hlutirnir kosta, þá kemur smá upptalning:



  • Internet í klukkustund 1 soles = 20 ISK (og meira að segja frítt á hótelinu okkar)

  • Skinkuhorn með miklum osti og skinku 1 soles = 20 ISK

  • Rauðvínsglas á matsölustað 10 soles = 200 ISK

  • Nudd í tíu mínútur 10 soles = 200 ISK

  • Filet mignon 200 gr á fínu steikhúsi 30 soles = 600 ISK

  • Gos á matsölustað 3-4 soles = 60-80 ISK

  • Leigubíll frá miðbæ á hótel (20 mín) 8 soles = 160 ISK

Það er sem sagt allt ódýrt hér sem er HRIKALEGA gaman, nema reyndar innfluttar tæknivörur. Það er ekki gott fyrir okkur núna enda að reyna að bæta úr cameru-leysi.

Það er alveg ótrúlegt að vera á stað þar sem maður fær á tilfinninguna að maður sé að græða þegar maður er að eyða... svipað og þegar konur fara á útsölur og finna eitthvað sem þær þurfa ekki, kaupa síðan nokkur stykki því þær eru að græða svo mikið. Nema hvað núna erum við að tala um mat sem við þurfum hvort sem er að kaupa og þá er þetta gríðarlega gaman.

Lima hefur s.s. verðlagsvinninginn hingað til (London vs. Lima) varðandi allt nema tec-dót.

hyski skrifaði 3:16 EH | Comments (3)

Myndavelin er glotud

Myndavelin er glotud, henni var stolid ur vasa minum (SK) a logregluhatidinni i gaer. Thad er bot i mali ad vid hofum lika videoupptokuvel, thannig ad vid eigum til eitthvad af thessari skemmtilegu hatid a stafraenu formi.

Vid Hjordis hofum alltaf att thann draum ad sja mumiur og bregda a leik med theim, thennan draum letum vid raetast a British Museum um daginn. Tokum margar myndir af okkur i snidugum stellingum med vinum okkar mumiunum... vonandi ad thjofurinn komi til med ad hafa gaman af.

Shit happens, hvad aetli TM segi?
Verst thetta med myndirnar. Best ad therra tarin og haetta thessu vaeli.

Btw.
Folkid herna er mjog vinalegt :)

hyski skrifaði 2:57 EH | Comments (8)

ágúst 30, 2005

Líma - Perú

Nú erum við stödd í Lima, Perú. Ferðalagið hingað var frekar langt en þjónustan í flugvélinni var góð og fengum við tvisvar mat. Maturinn var það helvíti góður að gott ef ekki að hann nái topp þremur af flugvélamat fyrr og síðar.

Annars lentum við hérna í gærkvöldið og tókum leigubíl á hótelið. Það var strax frekar mikil upplifun að vera í leigubílnum á leiðinni því umferðin var alveg rosaleg, allir að flauta og keyra frekar svínslega. Síðan var áberandi mikið af fólki sem stóð alveg við götuna annað hvort að bíða eftir strætó eða selja eitthvað. En það var ekki þessi venjulegi strætó sem við þekkjum sem var að sækja fólkið heldur svona sendibíll (samt með gluggum), alveg eldgamlir bílar. Það var allt morandi í svona bílum, allir troðfullir af fólki, sumir með 10-15 manns.

En eins og sannir Íslendingar hentum við töskunum okkar uppá hótel og löbbuðum beint í næsta MOLL... hehe en ok svona okkur til varnar þá var þetta nú ekkert alveg venjulegt moll og við fórum nú bara til þess að fá okkur eitthvað að borða. En við þurftum að labba niður tvær götur frá hótelinu til þess að komast í þetta moll og samkvæmt kortinu sem við vorum með átti þetta moll að blasa við okkur þegar að við kæmum við endann á einni götu við sjóinn. Þegar að við komum þangað sáum við ekkert moll og skildum ekkert í þessu þannig að við spurðum lögreglumann. Hann benti okkur á að labba niður tröppur og þá sáum við að þetta var svona úti-moll sem var í klettunum og það þurfti að labba niður til að komast að því.

Í dag vöknuðum við síðan eldsnemma og fengum hótelið til að panta fyrir okkur leigubíl niðurí bæ, því þegar að við sögðumst ætla að labba hlóu þeir bara að okkur. Leigubíllin reyndist vera jafn gamall leigubílsstjóranum, en hann var eldri en sólin. Engin belti afturí og við erum bæði sannfærð um að þessi bíll sé að syngja sitt síðasta.

Við vorum svo heppin að þegar að við komum niðrí bæ var rosalega mikið af fólki hérna og við sáum strax að það var einhver hátíð í gangi. Þegar að við spurðum kom í ljós að þetta er lögregluhátíð.

En það er eitt frekar merkilegt við að vera hér og það er það að fólk horfir alveg rosalega mikið á okkur, gjörsamlega glápir. Síðan er rosalega mikið af svona unglingsstelpum að taka þátt í þessari lögregluhátíð og eru í einhversskonar skólabúningum. Nema hvað mikið af þessum stelpum eru alveg óhræddar við að horfa á okkur, bjóða okkur velkomin til Perú og flissa. Síðan lentum við í því áðan að við löbbuðum frá aðaltorginu niður eina götu og einn svona stelpnahópur labbaði á eftir okkur, flissandi og voru greinilega að reyna að mana hverja aðra í að tala við okkur. Endaði þannig að þær hlupu framfyrir okkur til að stoppa okkur, spurðum hvað við hétum og spurðu líka eitthvað meira sem við skildum ekki. En það er alveg ótrúlegt hvað fáir skilja ensku hér.

Stemmingin hérna hjá okkur er annars bara frábær.

hyski skrifaði 4:17 EH | Comments (8)

ágúst 28, 2005

London

Nu erum vid i London i sol og blidu (amk. 20 stig).

Sottum alla flugmidana a ferdaskrifstofuna adan og kiktum sidan i Covent Garden.

Vid akvadum ad taka forskot a saeluna og skoda menningu hinna ymsu landa. Thad gerdum vid med thvi ad kikja i British Museum. Vid einbeittum okkur ad Afriku og Asiu. Letum gamlan draum raetast og skodudum mumiur, thaer voru ekkert sma hressar :)

Nu erum vid a Oxfordstraeti ad rolta um og skoda. Sidan er eina vitid ad hvilast thar sem vid eigum 16 og halfs tima ferdalag fyrir hondum i nott.

hyski skrifaði 1:27 EH | Comments (5)

ágúst 27, 2005

Nú er komið að því !

Eftir klukkutíma förum við af stað með flugrútunni til Keflavíkur og þriggja mánaða ferðalagið okkar hefst. Ferðinni er heitið til London í dag en þangað förum við í tveggja daga borgarferð og sækjum flugmiðana okkar, en við bókuðum flugin hjá Breskri ferðaskrifstofu, STA travel. Á mánudaginn fljúgum við síðan til Perú í Suður-Ameríku.

Við erum orðin alveg ótrúlega spennt, búin að pakka öllu sem við munum eftir en trúum því samt varla að það sé komið að þessu.

hyski skrifaði 11:08 FH | Comments (2)

ágúst 23, 2005

Leiðin sem við förum er eftirfarandi



Hér fyrir neðan er planið, svo er bara að sjá hvort þetta gengur allt eftir.

Reykjavík - Klakinn
London - UK

Lima - Perú
Perú -Inca-Amazon
Rio og Sao - Brasilía
Quito - Equador
Galapagos - Equador

Los Angeles- USA

Tokyo - Japan
Hong Kong - Kína
Bangkok - Thailand
Ýmsar borgir í Thailandi, Laos og Víetnam
Hong Kong - Kína
Bali - Indónesía

Cape Town - S.Afríka

London - UK
Reykjavík - Klakinn

hyski skrifaði 12:22 FH | Comments (1)

Koma útlitinu í gang

Vonandi að þetta fari að skríða saman.

hyski skrifaði 12:06 FH | Comments (3)

ágúst 12, 2005

Hvers vegna hyski.net?

Hjördís Ýr Ólafsdóttir & Snæbjörn Konráðsson. Saman mynda upphafsstafirnir "hýsk". Þar sem þetta afdrep okkar er á Internetinu, þá bætum við stafnum i við og fáum út hýski.

Hýski er fornt íslenskt orð, en í dag er það stafsett sem hyski.

En hvað þýðir hyski?
Hyski var orð vikunnar hjá Orðabók Háskólans, í stuttu máli þýðir orðið fjölskylda. Seinna var farið að nota það í neikvæðri merkingu, en nú er kominn tími á að farið verði að nota orðið aftur í jákvæðri merkingu.

http://www.lexis.hi.is/ordvikunnar/hyski.html

hyski skrifaði 11:05 FH | Comments (293)

ágúst 10, 2005

Þakkir fá Egill og Pablo fyrir aðstoð við gerð þessara síður

Egill fyrir aðstoð og hýsingu, Pablo fyrir hönnun. Án þeirra væri þessi vefur bara drezl á blogspot.

hyski skrifaði 7:56 EH | Comments (1)