« nóvember 2005 | Main | júlí 2006 »
desember 3, 2005
Komin heim
Nú erum við komin heim í hlýjuna á Íslandi.
Topp fimm ástæður þess að við getum glaðst yfir heimkomunni
- Fjölskylda & vinir
- Fötin
- Rúmið
- Alvöru sjónvarp og græjur
- Hröð internet tenging
Topp fimm til að gráta yfir
- Kuldinn, þetta er alkul
- Þurfum að þvo þvottinn okkar sjálf
- Þurfum að elda, engin herbergisþjónusta og veitingastaðirnir eru vægast sagt dýrir
- Vinna alvöru vinnu, ekki bara vinna við að leika okkur :)
- Nuddið kostar ekki 200 kr. klukkutíminn eins og í Asíu
Annars þökkum við fyrir lesturinn. Sjáumst hress og kát á næstu dögum.
hyski skrifaði 12:28 FH | Comments (9)
desember 1, 2005
Heimkoma
Nú er ferðinni okkar að ljúka. Við höldum heim í dag (fimmtudag) en lendum á Íslandi síðla föstudagskvöld. Stoppum í London í hálfan dag. Förum s.s. úr hita og sól í vont veður á Bretlandseyjum yfir í verra veður á Íslandi.
Síðustu þrír mánuðir hafa verið frábærir. Við erum búin að gera og sjá svo miklu meira en við þorðum að vona. Höfum heimsótt 12 lönd og flogið endalaust mikið. Upplifað þvílíka breidd af menningu, trúarbrögðum og umhverfi.
Hvað stendur uppúr ferðinni? Við getum eiginlega ekki svarað því. Sum lönd sem við heimsóttum elskuðum við og önnur ekki. En við getum þó ekki valið neitt eitt uppáhalds land vegna þess að þau hafa uppá svo mismuandi að bjóða. Þó munum við alltaf muna eftir þeim hópferðum sem við fórum í og fólkinu sem við kynntumst í þeim.
Ef við rennum aðeins í gegnum bestu löndin.
Perú, fyrsta landið sem við heimsóttum, er alveg yndislegur staður. Umhverfið og breiddin er ótrúleg. Það er hægt að vera í stórborg einn daginn, í 4000 metra hæð næsta dag og í frumskóginum þann þriðja. Þar er gífurlega mikið að sjá og var fjögurra daga gangan að Macchu Picchu vel þess virði.
Ekvador er líka frábært land, hefur svipaða breidd og Perú, plús rjómasprengjuna Galápagosar eyjar. Þvílíkt ævintýri sem það var að sigla um eyjarnar í 4 daga, kafa, skoða dýralífið, njóta náttúrunnar og synda með dýrunum. Fórum reyndar á frekar óheppilegum tíma að því leiti að sjórinn var kaldur og úfinn, en á móti fengum við að sjá nýfædd sæljón sem var frábært. Ætli við förum ekki um sumar næst :)
Perú og Ekvador eru þó mjög fátæk lönd og það var frekar mikið sjokk að koma þangað og sjá hvernig sumt fólkið hefur það. Okkur hefur þó þótt merkilegt að sjá hvað fólk sem hefur það skítt getur verið lífsglatt meðan þeir sem hafa það þokkalegt væla.
Eftir Suður Ameríku flugum við til Asíu, með stopp í LA. Fyrsta land í Asíu var Japan og er höfuðborgin eins og menn vita ein sú dýrasta í heimi. Tokyo er skemmtileg en dýr borgarferð þar sem hægt er að fá einstaka menningu beint í æð.
Tæland er yndislegt land. Þar er hægt að upplifa frábæra menningu, veðrið er gott og þar er ódýrt að vera. Fólkið sem varð á vegi okkar í Tælandi var mjög kurteist og einlægt.
Það var gaman að heimsækja Laos og við kunnum vel að meta sögu landsins. Í Laos fengum við sennilega einhvern þann besta mat í Asíu (sem var líka ódýrastur), en það er kannski alltílagi að segja frá því að við fíluðum matinn í Asíu almennt ekkert alltof vel :o)
Balí er frábær sumarleyfisstaður og ekki skrítið að Ástralarnir fylkist þangað í sumarfrí. Veðrið og verðið er gott og fólkið vinalegt þrátt fyrir svolítið væl.
Nú loks er það Suður Afríka og það er mjög fallegt land, við vitum þó ekki hvort við getum vottað fyrir það að þetta sé fallegasti staðurinn í heimi eins og við höfum heyrt. En það er mjög skemmtilegt hvað sumt af náttúrunni hér er lík íslenskri náttúru. Hér er skemmtilegt að vera og gott veður, en frekar dýrt miðað við Asíu mínus Japan.
En jæja þá er það komið, kærar þakkir fyrir að fylgjast með ferðinni okkar á síðunni og sjáumst fljótlega :o)
hyski skrifaði 3:09 EH | Comments (2)
Cape Town - Suður Afríka
Nú erum við búin að vera í Suður Afríku í nokkra daga. Hér er mjög þægilegt að vera og umhverfið rosalega fallegt. Um daginn ákváðum við að leiga okkur bílaleigubíl og keyra aðeins um svæðið. Þetta er þó ekki frásögu færandi nema af því að hér keyra menn, eins og í Bretlandi, öfugumegin á götunni og stýrið er öfugu megin líka. En við ákváðum að gera þetta frekar en að troða okkur í einhverja rútu og keyra um með hóp, þolum ekki fólk :D
Við byrjuðum á því að keyra að Table mountain og fara uppá fjallið með kláfi (e. cable car). Þetta er virkilega fallegur staður og mjög gott útsýni er yfir alla borgina. Hjördís keyrði, enda mun betri ökumaður að eigin sögn, og hún stóð sig alveg hriiiikkkalega vel ;o)
Næst var haldið á ströndina þar sem við röltum aðeins um. Ákváðum síðan að skella okkur bara í allann pakkann og keyra til Boulders bay þar sem hægt er að sjá afrískar mörgæsir. Eftir góða stund með hressum mörgæsum keyrðum við áfram að Góðrarvonarhöfða (e. Cape of good hope) sem er suðvestasti oddur Afríku. Þetta var skemmtilegt ferðalag.
Hér er helst töluð enska og afríska, þó svo að opinberlega séu 11 tungumál. Enskan er einna vinsælasta tungumálið í Suður Afríku, en það er engin leið fyrir okkur að skilja hana. Hún er töluð með bresk-afrískum hreim, en afríska er germanskt mál (ótrúlegt að hugsa til þess að afríska hafi einu sinni verið málíska í hollensku). Þeir sem hafa reynt að hlusta á Þjóðverja tala nasízku vita að breski framburðurinn getur orðið frekar bjagaður. Bættu síðan við enskum hreim ofan á og það er útilokað að skilja eitt aukatekið orð.
Eins og Hong Kong er asíska London, þá er Cape town afríska London.
Skoðið nýjustu myndirnar og myndskeiðin frá Suður Afríku og Balí
- Myndir frá Balí
- Myndskeið af aðal dansaranum á Balí
- Myndir frá Suður Afríku
- Myndskeið af því sem ferðin snérist um að sjá
hyski skrifaði 10:50 FH | Comments (0)