« desember 2005 | Main | júní 2007 »
júlí 28, 2006
Lífið á skútunni
Eins og sjá má af myndinni hér fyrir neðan þá er í pre-production ný þáttaröð sem heitir lífið á skútunni (e. life on the yacht). Erum í viðræðum við helstu sjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna, en líklegast þykir þó að MTV muni kaupa þessa þætti.

Þeir fjalla um 6 yndisfríða einstaklinga sem allir fara saman í sumarfrí á yndislegan stað þar sem alltaf er sól, en plotturinn þykknar þegar þau fara í skútuferð og týnast útá hafi. Hópurinn rekst svo á Hollendinga og ísbirni á ferðalagi sínu. Þó líta þau alltaf vel út í hverjum þætti og eru í nýjum fötum, rétt eins og hvert þeirra hafi haft með sér 3-4 ferðatöskur fullar af fötum. Þátturinn verður sýndur á Skjáeinum í vetur á fimmtudögum kl. 20.
hyski skrifaði 9:53 FH | Comments (2)
júlí 22, 2006
Er hægt að mæla með ferð til Marmaris/Ísmael?
Þegar stórt er spurt er fátt um svör, en ekki þegar við eigum í hlut. Okkur finnst ekkert mál að svara þessari spurningu.
- Ert þú tilbúinn að verða fyrir sífeldu áreiti kvelds og morgna þegar þú ert ekki innan lóðamarka hótelsins?
- Láta bjóða nokkur kameldýr í barnið þitt þegar þú gengur um markaðinn?
- Verða var við þegar þeir hækka viljandi verðið á vörunum í búðinni eða matsölustöðunum?
- Lenda iðulega í að fá of lítið til baka?
Okkur fannst þetta ekkert svo hrikalegt fyrstu vikuna, fannst þetta barnaleikur miðað við Balí þar sem allir reyndu að selja þér eitthvað, ekki bara búðar- og matsöluliðið. Aðrir í kringum okkur voru orðnir mjög þreyttir eftir fyrstu vikuna. Við fundum í raun og veru ekkert fyrir þessu fyrr en í dag þegar við vorum orðin mjög svöng og þreytt og gengum eftir götunni í átt að ákveðnum kebab stað.
Skulum samt ekki missa okkur í neikvæðni.
- Hér má fá mjög mjög góðan Kebab á flestum stöðum
- Tyrkneskt bað = skipta um ham
- Láta lítinn Tyrkja svitna frá sér allan vökva þegar hann þjösnast á þér í baknuddi
- Borða góðan mat á Love Boat
- Henda þjónavitleysingjunum á hótelinu í laugina
- Constant sól og blíða og raki í lágmarki
Kannski er bara fínt að fara hingað eina viku, kannski eru tvær vikur of mikið. Flugið og rútuferðin eru samt of mikið fyrir eina viku.
Kannski er Spánn bara málið? Að vísu ekki Mallorca, Costa del Sol eða Benidorm. Kannski er þetta allt sami skíturinn, þ.e.a.s. þessar skipulögðu skrílsferðir, kannski eigum við bara heima í 5.000 metra hæð tyggjandi kókalauf :)
En þetta er samt helvíti fínt. Nú vita allir sem lásu textann hér að ofan að hverju þeir ganga þegar þeir koma hingað til Tyrklands.
hyski skrifaði 6:18 EH | Comments (1)
júlí 21, 2006
Tyrkland, letin í hámarki
Síðustu daga höfum við í raun og veru gert ekkert annað en að draga andann. Að vísu höfum við kíkt nokkrum sinnum út fyrir hótelgarðinn. Það sem vekur furðu og eftirtekt eru allar "fallegu" bresku stelpurnar/konurnar sem hafa nælt sér í lítinn Tyrkja. Þessir nettu Tyrkir eru yfirleitt helmingi minni á alla vegu. Þeir vita sem er, ef þeir ná að heilla "ríku" konuna, þá fá þeir kannski vinnu í heimalandi þeirra. Að vísu erum við búin að hitta nokkra Tyrkja sem eiga vini sem eiga íslenska kærustu. Já, þetta er bara alveg eins og Tæland nema hvað að strákarnir voru með karlmönnum... hmmm.
Annars sitjum við á kaffihúsi og snæðu ágætis bakkelsi af ýmsum toga. Veðrið er eins og það er, alveg frábært.
Næsta sunnudag ætlum við að skella okkur í siglingu með vinapörunum, en við erum búin að leigja okkur skútu. Það verður örugglega mjög hressandi.
hyski skrifaði 3:00 EH | Comments (0)
júlí 17, 2006
Tyrkland - fyrsta vika
Dagur 0
Við eins og svo margir aðrir á Íslandi vorum orðin þreytt á rokinu og rigningunni. Því ákváðum við að skella okkur í sól og sumaryl. Tyrkland varð fyrir valinu, bæði vegna þess að hvorugt okkar hafði komið þangað og veðrið virtist vera hvað hagstæðast.
Staðurinn heitir Ísmael og er nálægt stærri bæ sem ber heitið Marmaris.
Dagur 1
Óhætt er að segja að fyrsti dagurinn hafi farið í ferðalag. Ferðin hófst á þriggja tíma seinkun á fluginu. Eftir að afplánun lauk tók við fimm eða sex tíma flug. Þegar við lentum tók við tveggja tíma rútuferð með klukkutíma stoppi á bensínstöð, menn voru víst orðnir svangir og vildu troða í sig. Ferðalagið tók því um ellefu tíma.
Þegar við vorum loksins mætt á svæðið var lítið um að vera, enda klukkan orðin allt heimsins plús þrír vegna tímamismunar.
Dagur 2
Daginn eftir vöknuðum við hress og kát um miðjan dag. Fljótlega eftir að við vöknuðum kom ræstingakona í herbergið og fór að laga til (vá hvað það er mikill lúxus að vera í frí). Þetta var þó ekki eins og hver önnur ræstingakona, því þegar að hún hafði farið eins og stormsveipur í gegnum alla íbúðina tók hún um axlirnar á Hjördísi, kyssti á báða vangana og faðmaði svo þétt að sér. Maður getur nú varla ímyndað sér betri leið til þess að vakna... eða hvað?
Hálftíma seinna tók við kynnisferð með Úrval Útsýn þar sem farið var með túristana í leðurbúð, gullsmíðaverkstæði og út að borða. Við slepptum leðurverkstæðinu, fórum á rölt og fengum okkur Dürüm kebab, hann var ekkert smá góður! Þegar kebabinn var búinn töltum við til baka og hittum hópinn. Það sem þau höfðu lært var það sem allir vita, bera loga að leðri til að sjá hvort það brenni. Ef varan brennur, þá er hún pleather eða eitthvað álíka drezl. Næst var það goldie, en þar hlustuðum við á sölumann dauðans. Síðan fórum við út að borða í boði ÚÚ, eða þessara gull- og leðuraðila. Við vitum ekki hvað skal segja um svona ferð, frekar ódýrt af ferðaskrifstofu að fara með kúnnana sína á staði sem þessa. Þegar við komum loksins aftur upp á hótelið var farið að rökkva og við fórum og fengum okkur kebab fyrir háttinn.
Dagur 3
Við vöknuðum á skaplegri tíma og litum í kringum okkur í dagsbirtunni. Umhverfið er frábært! Skógi vaxnar hlíðar umlykja bæinn. Þegar horft er út á sjó tekur við annar skógur á eyju skammt undan þannig að það má segja að það sé skógur allan hringinn í þessum dal.
Eitthvað sóluðum við okkur, en ekki mikið þar sem verkefni kvöldsins var meðal annars að fara í body scrub sem er einmitt partur af tyrknesku baði. Hjördís var uggandi yfir þessu þar sem allar myndir af tyrkneskum baðhúsum sýna hálfnakta, sveitta karlmenn á miðjum aldri. Kannski er þetta draumastarfið hjá karlmönnum á þessum aldri? Grái fiðringurinn búinn að kicka inn og tilvalið að fá útrás fyrir spennunni í baðhúsi. Þetta er kannski bara viðskiptatækifæri, menn geta sleppt mótorhjólinu og unga viðhaldinu og farið út í rekstur. Við bitum á jaxlinn og mættum í góðum fíling í baðhúsið, þar tók við þrjátíu mínútna gufubað í stórum sal með kúptu þaki. Þar sem við vorum seint á ferð höfðum við allan salinn fyrir okkur. Þegar við hófum að spjalla kom í ljós hversu hressandi hljómburðurinn var í salnum, því brýndum við rausnina og hummuðum íðilfagra tóna sem bergmáluðu svona ansi skemmtilega.
Þegar við vorum við suðumark komu tveir glaðhlakkalegir Tyrkir inn. Þeir kældu marmarann, fengu okkur til að liggja á honum og skrúbbuðu okkur hátt og lágt. Þetta var í fyrsta skipti sem við höfum haft svona mikil hamskipti, það hefði verið hægt að búa til góðan leðurjakka úr húðinni sem varð eftir. Við stukkum í stutta sturtu til að ná restinni af lausa hamnum af. Síðan tók við sápunudd sem var mjög svo þægilegt. Tyrkneskt bað felur ekki meira í sér, en þar sem við eigum að heita Íslendingar, og Íslendingar vilja alltaf allan pakkann og aðeins meira, fengum við okkur nudd og andlitsbað. Nuddið var sæmilegt og andlitsbaðið náði ekki sömu hæðum og andlitsbaðið í American Pzycho. Því mælum við með standard tyrkensku baði.
Dagur 4
Þessi dagur hófst á kebab eins og allir aðrir. Það er óhætt að segja að kebabinn hjá vinum okkar í Tyrklandi klikki ekki. Dürüm er nærri það eina sem við borðum, enda erum við sjúk í þessa snilld. Síðan sóluðum við okkur, fórum í göngutúr niður að strönd og átum ítalskan.
Dagur 5
Við vöknuðum í miklu panic-i þar sem rútan sem við áttum að taka í bátsferðina var komin. Hentum okkur í fötin og hlupum út. Auðvitað vorum við ekki síðust þar sem þetta var Íslendingaferð og Íslendingar eru þekktir fyrir allt annað en stundvísi. Við keyrðum að Gekova flóanum og fórum þar í bátinn.
Umhverfið, veðrið og fólkið um borð gerðu það að verkum að siglingin var alveg frábær. Kjartan fararstjóri er skemmtilegur karl og gaman að hlusta á hann, en Magni (sem átti og rak búðina Hjá Magna) stal senunni. Þegar við vorum ekki að spjalla við fólkið eða hoppa í hafið, reytti hann af sér brandarana.
Að lokinni skemmtilegri bátsferð fórum við út að borða með tveimur öðrum íslenskum pörum sem eru á sama hóteli og við (Ágúst & Nína og Benedikt & Laufey). Haldið var á indverskan stað í Marmaris - myndir birtast síðar. Maturinn var ágætur, en ekki jafn góður og kebab.
Dagur 6
Sunnudagur. Við gerðum ekkert í dag annað en að gera ekki neitt, enda hvíldardagur.
Dagur 7
Hófum daginn á sólarvarnarklístri og góðum kebab. Hentum síðan barþjóni í laugina (myndband kemur seinna). Síðan erum við bara búin að skrifa þennan texta og setja hann á lýðnetið.
Fyrir forvitna þá er núna um 35 stiga hiti og sól.
hyski skrifaði 2:20 EH | Comments (7)