júlí 28, 2006
Lífið á skútunni
Eins og sjá má af myndinni hér fyrir neðan þá er í pre-production ný þáttaröð sem heitir lífið á skútunni (e. life on the yacht). Erum í viðræðum við helstu sjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna, en líklegast þykir þó að MTV muni kaupa þessa þætti.

Þeir fjalla um 6 yndisfríða einstaklinga sem allir fara saman í sumarfrí á yndislegan stað þar sem alltaf er sól, en plotturinn þykknar þegar þau fara í skútuferð og týnast útá hafi. Hópurinn rekst svo á Hollendinga og ísbirni á ferðalagi sínu. Þó líta þau alltaf vel út í hverjum þætti og eru í nýjum fötum, rétt eins og hvert þeirra hafi haft með sér 3-4 ferðatöskur fullar af fötum. Þátturinn verður sýndur á Skjáeinum í vetur á fimmtudögum kl. 20.
hyski skrifaði 28.07.06 09:53
Hjal
Hæ og hó brrrr hvað er kalt á Íslandi ojjj.
Enn alla vena æðislega skemmtilegar myndir frá Marmaris :) Sjáumst
Kveðja Rakel Ýrr
Posted by: Rakel Ýrr at 29.08.06 12:31
kannski eruð þið komin heim... hver veit, en ég er að gefa út ferðabók um ferðalög í Suður-Ameríku.. hægt að sjá stutta kafla úr henni hér:
http://nemendur.ru.is/hutg/haskafor/
Posted by: Huginn at 20.11.06 23:21