júní 21, 2007

Maldíveyjar, bæbæ. London, hæ. Ísland, hæhæ.

Nú eru tvær nætur eftir á Maldíveyjum, einn rólegur dagur og annar ferðadagur.

Það er búið að rigna í viku, þannig að hörundsliturinn er ekki eins dökkur og maður skyldi ætla. Við höfum nýtt rigningardagana í lærdóm. Þessum lærdómi lauk með bóklegu köfunarprófi þar sem við fengum hæstu einkunn :)

Annars erum við búin að gera lítið annað en að kafa og lesa þannig að við höfum aðeins örfáar nýjar myndir til að sýna.

hyski skrifaði 21.06.07 17:24

Hjal

Við erum farin að hlakka til að fá ykkur heim.Hvenær verður það? Við komum heim í fyrradag gistum 2 nætur á Akureyri, 2 á Hallormsstað og 1 á Kirkjubæjarklaustri. Ferðaveðrið var bjart og fögur fjallasýn.Bestu kveðjur.

mamma og pabbi

Posted by: mamma og pabbi at 22.06.07 19:58

Við komum næsta sunnudagskveld, væntanlega stuttu eftir miðnætti ef Icelandair heldur áfram að vera ALLTAF á eftir áætlun :)

Posted by: Við at 23.06.07 23:52

Þú getur hjalað




Muna eftir mér?