júní 6, 2007

Fyrstu dagarnir á Maldíveyjum

Síðustu dagar hafa verið mjög ljúfir.

Við reynum að takmarka dagskránna við eitt verkefni á dag, fyrir utan snæðing.

Í gær tókum við vel á því. Fórum á sjókött og tvær gerðir af dóti sem hraðbátur dróg á fullri ferð. Um kveldið snæddum við á Koko, en það er staður með austurlensku ívafi, sushi og mörgu öðru skemmtilegu. Daginn áður afrekuðum við að fara í sænskt nudd. Daginn þar á undan og í dag buffuðum við okkur í ræktinni. Hjördís er orðin það virk að hún er jafnvel að hugsa um að gera eitthvað tvennt í dag.

Annars lentum við eina nóttina í því að skríllinn hélt fyrir okkur vöku með partýstandi. Sem betur fer er lítið um tjalla á svæðinu, en þessir fáu geta ferið frekar háværir. Það jákvæða við þetta var að við Hjördís fórum út um miðja nótt og sáum þennan líka hriiiikalega stóra hákarl synda framhjá kofanum okkar. Náðum því miður ekki mynd, en við náðum mynd af massa skötu sem kíkti í heimsókn.

Talandi um myndir, nokkrar eru komnar á hyski.net/gallery/

hyski skrifaði 06.06.07 09:51

Hjal

Hæ hæ eruð þið að djóka með sólarlagið ??
Þetta er bara geðveikt.
Skemmtið ykkur vel...

Kveðja Rakel, Sissi og Bóas í rigningunni endalausu á Fróni

Posted by: Rakel Ýrr at 06.06.07 15:32

Hæ hæ eruð þið að djóka með sólarlagið ??
Þetta er bara geðveikt.
Skemmtið ykkur vel...

Kveðja Rakel, Sissi og Bóas í rigningunni endalausu á Fróni

Posted by: Rakel Ýrr at 06.06.07 15:32

Þótt þetta líti út eins og sólarlag, þá er þetta tunglið að rísa. Myndin er tekin með svo mikilli tækni "scene1 - stars" að þetta verður alveg magnað. En þetta er samt alveg ótrúlega flott þó það sé ekki alveg eins og á myndinni :)

Posted by: Snæbjörn at 06.06.07 16:15

Hæ, það er greinilega geggjað stuð hjá ykkur.
Eitthvað annað en á Íslandi rokrassgatinu. Átti ég að kíkja á póstinn og stuff fyrir ykkur? Góða skemmtun.
Kveðja Brynhildur og hyski:)

Posted by: Brynhildur Konráðsdóttir at 06.06.07 23:38

Isss... Pufff... hvað voruð þið að skilja mig eftir, fyrirgef þetta aldrei. Vá hvað mig langar að vera þarna.

:(
Sissi

Posted by: Sissi at 07.06.07 11:43

Þú getur hjalað




Muna eftir mér?