júní 13, 2007
Maldíveyjar taka tvö
Nú erum við komin á nýtt hótel og nýja eyju.
Það er rosa gott að breyta til og þótt þetta sé ekki alveg jafn flott hótel þá er maturinn hérna miklu betri og ódýrari :o)
Merkilegt að á hótelinu sem við vorum á fannst okkur ekkert alltof margir vera, síðan töluðum við við einn starfsmann og hann sagði okkur að það væru um 350 gestir á hótelinu og um 400 starfsmenn... vóóóóvvv ekkert smá, okkur fannst við alltaf sjá sama fólkið aftur og aftur og töldum kannski vera um 50 gesti. Ótrúlegt.
En hér á nýja hótelinu eru mjög skemmtilegir veitingastaðir. Það er: kínverskur, japanskur, indverskur, arabískur, grillstaður og ítalskur. Við erum rosalega ánægð að vera komin í góðan mat.
Það er búið að vera mikið óveður núna í dag og í gær, hrikalegt rok og mikil rigning. En við látum það ekki á okkur fá og erum búin að fara í fyrstu köfunarferðina. Horfðum fyrst á myndband og svo fengum við kennslu og svo fórum við útí sjó. Þetta er alltaf smá stressandi og það er bara eitthvað óþægilegt við það að geta ekki andað með nefinu og þurfa að anda með svona tæki. En vonandi venst það bara. Við ætlum sem sagt að taka PADI Open Water próf og svo er stefnan tekin á það að prufa að kafa á Íslandi líka í sumar, eru ekki allir með?
Í gær heimsóttum við höfuðborg Maldíveyja sem heitir Male. Þetta er alveg ótrúlegt að höfuðborgin er staðsett á smá eyju sem hægt er að labba endanna á milli á stuttum tíma. Þarna fengum við leiðsögn um helstu minnismerki þessa staðar en þau voru hvorki mörg né merkileg. En það var gaman að sjá mannlífið á götunum, húsin og búðirnar. Við vorum alveg hissa á því hvað þetta er vanþróað og hvað búðirnar eru fátæklegar og skítugar. Fórum meira að segja í mollið á eyjunni og það var minna en venjuleg hagkaupsverslun heima. Hér vinna flestir í ferðamannaiðnaði fyrir um USD 450 á mánuði + þjórfé eða í fiskveiðum og húsin eru mjög lítil enda landsvæði dýrmætt.
Nú ætlum við að liggja í leti og lesa bækur og hafa það gott.
hyski skrifaði 13.06.07 06:45
Hjal
Hæ, hæ rosalega er fallegt hjá ykkur og gaman fyrir ykkur að kynnast fiskunum í kring. Vonandi verður veðrið gott hjá ykkur af því það er nú grundvallar atriðið í svona ferð.
Góða skemmtun Brynhildur, Haffi og börn.
Posted by: Brynhildur Konráðsdóttir at 13.06.07 23:31
Blessuð.
Gott að allt er í góðu lagi hjá ykkur. Við byrjum í sumarfríi á morgun og förum til Akureyrar að skemmta okkur með 40 ára útskriftarfélögunum. Það fer síðan eftir veðráttu með áframhaldið. Veðrið hér er aðeins að skána.Pabbi þinn er farand garðyrkjumaður. Bestu kveðjur og óskir um áframhaldandi gott frí.
mamma og pabbi.
Posted by: Arndís og Konráð at 14.06.07 09:36