mars 7, 2008

Selva á Ítalíu

Nú erum við búin að vera tæpa viku í snjóbrettaferð í Selva á Ítalíu.

Prógrammið er nokkuð eins alla daga - snjóbretti / hádegismatur / snjóbretti / sauna og gufa / matur / bíó og sofa. Þetta er voðalega þægilegt. Hér eru endalausar lyftur og brautir og við höfum farið í nýja brekkur á hverjum einasta degi í þessari ferð. Lyfturnar hér eru mjög þægilegar og flottar, brekkurnar frábærar og breiðar og snjórinn hefur verið mjög fínn. Fyrstu dagana var sól og blíða og við lögðumst af og til í sólbað í brekkunum :o)

Hér erum við á ágætis hóteli, svo ágætu að meistari Kristján óperusöngvari dvelur hér líka. Maturinn er skuggalega góður og það eru hreinar línur að það grennist enginn í þessari ferð (en það gerðist örugglega í reykmettaða Austurríki þar sem maturinn er óbjóður).

Annars er veðriði búið að vera fjölbreytilegt. Sól og blíða, kaldara en allt kalt og svo að lokum snjókoma og þoka.
Sólardagurinn mikli var skemmtilegur að því leiti að þá vorum við bara á peysunum (að vísu er Snæbjörn búinn að vera án snjóbrettaúlpu alla dagana því hann týndi sinni (hún var orðin lúin og við grátum hana ekki). Síðan vara það kuldadagurinn, en þá fórum við með þyrlu upp á einhvern tind. Skemmtilegasti dagurinn var dagurinn eftir snjókomuna miklu, því þá vorum við tail-ride-andi milli trjáa í púðrinu, verður ekki betra en það!

Eins og við erum nú búin að vera dugleg að vakna á morgnanna, þá erum við búin að vera jafn löt að taka myndir. Það má þó nálgast nokkrar myndir á myndasvæðinu okkar.

hyski skrifaði 9:06 FH, í | Hjal (0)

júní 21, 2007

Maldíveyjar, bæbæ. London, hæ. Ísland, hæhæ.

Nú eru tvær nætur eftir á Maldíveyjum, einn rólegur dagur og annar ferðadagur.

Það er búið að rigna í viku, þannig að hörundsliturinn er ekki eins dökkur og maður skyldi ætla. Við höfum nýtt rigningardagana í lærdóm. Þessum lærdómi lauk með bóklegu köfunarprófi þar sem við fengum hæstu einkunn :)

Annars erum við búin að gera lítið annað en að kafa og lesa þannig að við höfum aðeins örfáar nýjar myndir til að sýna.

hyski skrifaði 5:24 EH, í | Hjal (2)

júní 14, 2007

Myndskeið frá nýja dvalarstaðnum og höfuðborginni Male

hyski skrifaði 2:35 FH, í | Hjal (3)

júní 13, 2007

Maldíveyjar taka tvö

Nú erum við komin á nýtt hótel og nýja eyju.

Það er rosa gott að breyta til og þótt þetta sé ekki alveg jafn flott hótel þá er maturinn hérna miklu betri og ódýrari :o)

Merkilegt að á hótelinu sem við vorum á fannst okkur ekkert alltof margir vera, síðan töluðum við við einn starfsmann og hann sagði okkur að það væru um 350 gestir á hótelinu og um 400 starfsmenn... vóóóóvvv ekkert smá, okkur fannst við alltaf sjá sama fólkið aftur og aftur og töldum kannski vera um 50 gesti. Ótrúlegt.

En hér á nýja hótelinu eru mjög skemmtilegir veitingastaðir. Það er: kínverskur, japanskur, indverskur, arabískur, grillstaður og ítalskur. Við erum rosalega ánægð að vera komin í góðan mat.

Það er búið að vera mikið óveður núna í dag og í gær, hrikalegt rok og mikil rigning. En við látum það ekki á okkur fá og erum búin að fara í fyrstu köfunarferðina. Horfðum fyrst á myndband og svo fengum við kennslu og svo fórum við útí sjó. Þetta er alltaf smá stressandi og það er bara eitthvað óþægilegt við það að geta ekki andað með nefinu og þurfa að anda með svona tæki. En vonandi venst það bara. Við ætlum sem sagt að taka PADI Open Water próf og svo er stefnan tekin á það að prufa að kafa á Íslandi líka í sumar, eru ekki allir með?

Í gær heimsóttum við höfuðborg Maldíveyja sem heitir Male. Þetta er alveg ótrúlegt að höfuðborgin er staðsett á smá eyju sem hægt er að labba endanna á milli á stuttum tíma. Þarna fengum við leiðsögn um helstu minnismerki þessa staðar en þau voru hvorki mörg né merkileg. En það var gaman að sjá mannlífið á götunum, húsin og búðirnar. Við vorum alveg hissa á því hvað þetta er vanþróað og hvað búðirnar eru fátæklegar og skítugar. Fórum meira að segja í mollið á eyjunni og það var minna en venjuleg hagkaupsverslun heima. Hér vinna flestir í ferðamannaiðnaði fyrir um USD 450 á mánuði + þjórfé eða í fiskveiðum og húsin eru mjög lítil enda landsvæði dýrmætt.

Nú ætlum við að liggja í leti og lesa bækur og hafa það gott.

hyski skrifaði 6:45 FH, í | Hjal (2)

júní 10, 2007

Rangali - nýjar myndir og bæ bæ, hæ hæ

Á morgun förum við á nýjan dvalarstað. Það verður ágætt því við erum orðin þreytt á þessum matsölustöðum, við viljum fara komast í indverskan mat og hefja köfunarnám.

Hér má finna nýjar myndir frá Rangali.

Friður.

hyski skrifaði 7:34 FH, í | Hjal (1)

júní 7, 2007

Myndskeið frá Maldíveyjum

hyski skrifaði 4:17 EH, í | Hjal (1)

júní 6, 2007

Fyrstu dagarnir á Maldíveyjum

Síðustu dagar hafa verið mjög ljúfir.

Við reynum að takmarka dagskránna við eitt verkefni á dag, fyrir utan snæðing.

Í gær tókum við vel á því. Fórum á sjókött og tvær gerðir af dóti sem hraðbátur dróg á fullri ferð. Um kveldið snæddum við á Koko, en það er staður með austurlensku ívafi, sushi og mörgu öðru skemmtilegu. Daginn áður afrekuðum við að fara í sænskt nudd. Daginn þar á undan og í dag buffuðum við okkur í ræktinni. Hjördís er orðin það virk að hún er jafnvel að hugsa um að gera eitthvað tvennt í dag.

Annars lentum við eina nóttina í því að skríllinn hélt fyrir okkur vöku með partýstandi. Sem betur fer er lítið um tjalla á svæðinu, en þessir fáu geta ferið frekar háværir. Það jákvæða við þetta var að við Hjördís fórum út um miðja nótt og sáum þennan líka hriiiikalega stóra hákarl synda framhjá kofanum okkar. Náðum því miður ekki mynd, en við náðum mynd af massa skötu sem kíkti í heimsókn.

Talandi um myndir, nokkrar eru komnar á hyski.net/gallery/

hyski skrifaði 9:51 FH, í | Hjal (5)

júní 2, 2007

Maldíveyjar

Nú erum við loXins komin til Maldíveyja. Við lögðum af stað snemma morguns 1. júní og komum 2. júní um hádegi á íslenskum tíma.

Ferðalagið var eftirfarandi: flug frá Íslandi, rölt um London hálfan dag, nokkra tíma seinkun á 10 tíma fluginu frá Heathrow til Maldíveyja og hoppuðum síðan upp í sjóflugvél til Rangali eftir klukkutíma bið á AirTaxi stöðinni..

Hér mætti okkur sól, 31 stigs hiti og endalaust málglaður hótelstarfsmaður.

Tímamisunurinn er +6 miðað við Ísland, þannig að nú er kveld hjá okkur en dagur hjá ykkur :)

Nú taka sól, sjór og sæla við.

hyski skrifaði 5:19 EH, í | Hjal (5)

júlí 28, 2006

Lífið á skútunni

Eins og sjá má af myndinni hér fyrir neðan þá er í pre-production ný þáttaröð sem heitir lífið á skútunni (e. life on the yacht). Erum í viðræðum við helstu sjónvarpsstöðvar Bandaríkjanna, en líklegast þykir þó að MTV muni kaupa þessa þætti.

| Hressandi sjóferð |

Þeir fjalla um 6 yndisfríða einstaklinga sem allir fara saman í sumarfrí á yndislegan stað þar sem alltaf er sól, en plotturinn þykknar þegar þau fara í skútuferð og týnast útá hafi. Hópurinn rekst svo á Hollendinga og ísbirni á ferðalagi sínu. Þó líta þau alltaf vel út í hverjum þætti og eru í nýjum fötum, rétt eins og hvert þeirra hafi haft með sér 3-4 ferðatöskur fullar af fötum. Þátturinn verður sýndur á Skjáeinum í vetur á fimmtudögum kl. 20.

- Myndir frá ferðinni -

hyski skrifaði 9:53 FH, í | Hjal (2)

júlí 22, 2006

Er hægt að mæla með ferð til Marmaris/Ísmael?

Þegar stórt er spurt er fátt um svör, en ekki þegar við eigum í hlut. Okkur finnst ekkert mál að svara þessari spurningu.

  • Ert þú tilbúinn að verða fyrir sífeldu áreiti kvelds og morgna þegar þú ert ekki innan lóðamarka hótelsins?
  • Láta bjóða nokkur kameldýr í barnið þitt þegar þú gengur um markaðinn?
  • Verða var við þegar þeir hækka viljandi verðið á vörunum í búðinni eða matsölustöðunum?
  • Lenda iðulega í að fá of lítið til baka?

Okkur fannst þetta ekkert svo hrikalegt fyrstu vikuna, fannst þetta barnaleikur miðað við Balí þar sem allir reyndu að selja þér eitthvað, ekki bara búðar- og matsöluliðið. Aðrir í kringum okkur voru orðnir mjög þreyttir eftir fyrstu vikuna. Við fundum í raun og veru ekkert fyrir þessu fyrr en í dag þegar við vorum orðin mjög svöng og þreytt og gengum eftir götunni í átt að ákveðnum kebab stað.

Skulum samt ekki missa okkur í neikvæðni.

  • Hér má fá mjög mjög góðan Kebab á flestum stöðum
  • Tyrkneskt bað = skipta um ham
  • Láta lítinn Tyrkja svitna frá sér allan vökva þegar hann þjösnast á þér í baknuddi
  • Borða góðan mat á Love Boat
  • Henda þjónavitleysingjunum á hótelinu í laugina
  • Constant sól og blíða og raki í lágmarki

Kannski er bara fínt að fara hingað eina viku, kannski eru tvær vikur of mikið. Flugið og rútuferðin eru samt of mikið fyrir eina viku.

Kannski er Spánn bara málið? Að vísu ekki Mallorca, Costa del Sol eða Benidorm. Kannski er þetta allt sami skíturinn, þ.e.a.s. þessar skipulögðu skrílsferðir, kannski eigum við bara heima í 5.000 metra hæð tyggjandi kókalauf :)

En þetta er samt helvíti fínt. Nú vita allir sem lásu textann hér að ofan að hverju þeir ganga þegar þeir koma hingað til Tyrklands.

hyski skrifaði 6:18 EH, í | Hjal (1)

júlí 21, 2006

Tyrkland, letin í hámarki

Síðustu daga höfum við í raun og veru gert ekkert annað en að draga andann. Að vísu höfum við kíkt nokkrum sinnum út fyrir hótelgarðinn. Það sem vekur furðu og eftirtekt eru allar "fallegu" bresku stelpurnar/konurnar sem hafa nælt sér í lítinn Tyrkja. Þessir nettu Tyrkir eru yfirleitt helmingi minni á alla vegu. Þeir vita sem er, ef þeir ná að heilla "ríku" konuna, þá fá þeir kannski vinnu í heimalandi þeirra. Að vísu erum við búin að hitta nokkra Tyrkja sem eiga vini sem eiga íslenska kærustu. Já, þetta er bara alveg eins og Tæland nema hvað að strákarnir voru með karlmönnum... hmmm.

Annars sitjum við á kaffihúsi og snæðu ágætis bakkelsi af ýmsum toga. Veðrið er eins og það er, alveg frábært.

Næsta sunnudag ætlum við að skella okkur í siglingu með vinapörunum, en við erum búin að leigja okkur skútu. Það verður örugglega mjög hressandi.

hyski skrifaði 3:00 EH, í | Hjal (0)

júlí 17, 2006

Tyrkland - fyrsta vika

Dagur 0

Við eins og svo margir aðrir á Íslandi vorum orðin þreytt á rokinu og rigningunni. Því ákváðum við að skella okkur í sól og sumaryl. Tyrkland varð fyrir valinu, bæði vegna þess að hvorugt okkar hafði komið þangað og veðrið virtist vera hvað hagstæðast.

Staðurinn heitir Ísmael og er nálægt stærri bæ sem ber heitið Marmaris.


Dagur 1

Óhætt er að segja að fyrsti dagurinn hafi farið í ferðalag. Ferðin hófst á þriggja tíma seinkun á fluginu. Eftir að afplánun lauk tók við fimm eða sex tíma flug. Þegar við lentum tók við tveggja tíma rútuferð með klukkutíma stoppi á bensínstöð, menn voru víst orðnir svangir og vildu troða í sig. Ferðalagið tók því um ellefu tíma.

Þegar við vorum loksins mætt á svæðið var lítið um að vera, enda klukkan orðin allt heimsins plús þrír vegna tímamismunar.


Dagur 2

Daginn eftir vöknuðum við hress og kát um miðjan dag. Fljótlega eftir að við vöknuðum kom ræstingakona í herbergið og fór að laga til (vá hvað það er mikill lúxus að vera í frí). Þetta var þó ekki eins og hver önnur ræstingakona, því þegar að hún hafði farið eins og stormsveipur í gegnum alla íbúðina tók hún um axlirnar á Hjördísi, kyssti á báða vangana og faðmaði svo þétt að sér. Maður getur nú varla ímyndað sér betri leið til þess að vakna... eða hvað?  

Hálftíma seinna tók við kynnisferð með Úrval Útsýn þar sem farið var með túristana í leðurbúð, gullsmíðaverkstæði og út að borða. Við slepptum leðurverkstæðinu, fórum á rölt og fengum okkur Dürüm kebab, hann var ekkert smá góður! Þegar kebabinn var búinn töltum við til baka og hittum hópinn. Það sem þau höfðu lært var það sem allir vita, bera loga að leðri til að sjá hvort það brenni. Ef varan brennur, þá er hún pleather eða eitthvað álíka drezl. Næst var það goldie, en þar hlustuðum við á sölumann dauðans. Síðan fórum við út að borða í boði ÚÚ, eða þessara gull- og leðuraðila. Við vitum ekki hvað skal segja um svona ferð, frekar ódýrt af ferðaskrifstofu að fara með kúnnana sína á staði sem þessa. Þegar við komum loksins aftur upp á hótelið var farið að rökkva og við fórum og fengum okkur kebab fyrir háttinn.


Dagur 3

Við vöknuðum á skaplegri tíma og litum í kringum okkur í dagsbirtunni. Umhverfið er frábært! Skógi vaxnar hlíðar umlykja bæinn. Þegar horft er út á sjó tekur við annar skógur á eyju skammt undan þannig að það má segja að það sé skógur allan hringinn í þessum dal.

Eitthvað sóluðum við okkur, en ekki mikið þar sem verkefni kvöldsins var meðal annars að fara í body scrub sem er einmitt partur af tyrknesku baði. Hjördís var uggandi yfir þessu þar sem allar myndir af tyrkneskum baðhúsum sýna hálfnakta, sveitta karlmenn á miðjum aldri. Kannski er þetta draumastarfið hjá karlmönnum á þessum aldri? Grái fiðringurinn búinn að kicka inn og tilvalið að fá útrás fyrir spennunni í baðhúsi. Þetta er kannski bara viðskiptatækifæri, menn geta sleppt mótorhjólinu og unga viðhaldinu og farið út í rekstur. Við bitum á jaxlinn og mættum í góðum fíling í baðhúsið, þar tók við þrjátíu mínútna gufubað í stórum sal með kúptu þaki. Þar sem við vorum seint á ferð höfðum við allan salinn fyrir okkur. Þegar við hófum að spjalla kom í ljós hversu hressandi hljómburðurinn var í salnum, því brýndum við rausnina og hummuðum íðilfagra tóna sem bergmáluðu svona ansi skemmtilega.

Þegar við vorum við suðumark komu tveir glaðhlakkalegir Tyrkir inn. Þeir kældu marmarann, fengu okkur til að liggja á honum og skrúbbuðu okkur hátt og lágt. Þetta var í fyrsta skipti sem við höfum haft svona mikil hamskipti, það hefði verið hægt að búa til góðan leðurjakka úr húðinni sem varð eftir. Við stukkum í stutta sturtu til að ná restinni af lausa hamnum af. Síðan tók við sápunudd sem var mjög svo þægilegt. Tyrkneskt bað felur ekki meira í sér, en þar sem við eigum að heita Íslendingar, og Íslendingar vilja alltaf allan pakkann og aðeins meira, fengum við okkur nudd og andlitsbað. Nuddið var sæmilegt og andlitsbaðið náði ekki sömu hæðum og andlitsbaðið í American Pzycho. Því mælum við með standard tyrkensku baði.

Dagur 4

Þessi dagur hófst á kebab eins og allir aðrir. Það er óhætt að segja að kebabinn hjá vinum okkar í Tyrklandi klikki ekki. Dürüm er nærri það eina sem við borðum, enda erum við sjúk í þessa snilld. Síðan sóluðum við okkur, fórum í göngutúr niður að strönd og átum ítalskan.

Dagur 5

Við vöknuðum í miklu panic-i þar sem rútan sem við áttum að taka í bátsferðina var komin. Hentum okkur í fötin og hlupum út. Auðvitað vorum við ekki síðust þar sem þetta var Íslendingaferð og Íslendingar eru þekktir fyrir allt annað en stundvísi. Við keyrðum að Gekova flóanum og fórum þar í bátinn.

Umhverfið, veðrið og fólkið um borð gerðu það að verkum að siglingin var alveg frábær. Kjartan fararstjóri er skemmtilegur karl og gaman að hlusta á hann, en Magni (sem átti og rak búðina Hjá Magna) stal senunni. Þegar við vorum ekki að spjalla við fólkið eða hoppa í hafið, reytti hann af sér brandarana.

Að lokinni skemmtilegri bátsferð fórum við út að borða með tveimur öðrum íslenskum pörum sem eru á sama hóteli og við (Ágúst & Nína og Benedikt & Laufey). Haldið var á indverskan stað í Marmaris - myndir birtast síðar. Maturinn var ágætur, en ekki jafn góður og kebab.

Dagur 6

Sunnudagur. Við gerðum ekkert í dag annað en að gera ekki neitt, enda hvíldardagur.

Dagur 7

Hófum daginn á sólarvarnarklístri og góðum kebab. Hentum síðan barþjóni í laugina (myndband kemur seinna). Síðan erum við bara búin að skrifa þennan texta og setja hann á lýðnetið.

Fyrir forvitna þá er núna um 35 stiga hiti og sól.

hyski skrifaði 2:20 EH, í | Hjal (7)

desember 3, 2005

Komin heim

Nú erum við komin heim í hlýjuna á Íslandi.

Topp fimm ástæður þess að við getum glaðst yfir heimkomunni

  • Fjölskylda & vinir
  • Fötin
  • Rúmið
  • Alvöru sjónvarp og græjur
  • Hröð internet tenging

Topp fimm til að gráta yfir

  • Kuldinn, þetta er alkul
  • Þurfum að þvo þvottinn okkar sjálf
  • Þurfum að elda, engin herbergisþjónusta og veitingastaðirnir eru vægast sagt dýrir
  • Vinna alvöru vinnu, ekki bara vinna við að leika okkur :)
  • Nuddið kostar ekki 200 kr. klukkutíminn eins og í Asíu

Annars þökkum við fyrir lesturinn. Sjáumst hress og kát á næstu dögum.

- Jólaklippa frá London -

hyski skrifaði 12:28 FH, í | Hjal (9)

desember 1, 2005

Heimkoma

Nú er ferðinni okkar að ljúka. Við höldum heim í dag (fimmtudag) en lendum á Íslandi síðla föstudagskvöld. Stoppum í London í hálfan dag. Förum s.s. úr hita og sól í vont veður á Bretlandseyjum yfir í verra veður á Íslandi.

Síðustu þrír mánuðir hafa verið frábærir. Við erum búin að gera og sjá svo miklu meira en við þorðum að vona. Höfum heimsótt 12 lönd og flogið endalaust mikið. Upplifað þvílíka breidd af menningu, trúarbrögðum og umhverfi.

Hvað stendur uppúr ferðinni? Við getum eiginlega ekki svarað því. Sum lönd sem við heimsóttum elskuðum við og önnur ekki. En við getum þó ekki valið neitt eitt uppáhalds land vegna þess að þau hafa uppá svo mismuandi að bjóða. Þó munum við alltaf muna eftir þeim hópferðum sem við fórum í og fólkinu sem við kynntumst í þeim.


Ef við rennum aðeins í gegnum bestu löndin.

Perú, fyrsta landið sem við heimsóttum, er alveg yndislegur staður. Umhverfið og breiddin er ótrúleg. Það er hægt að vera í stórborg einn daginn, í 4000 metra hæð næsta dag og í frumskóginum þann þriðja. Þar er gífurlega mikið að sjá og var fjögurra daga gangan að Macchu Picchu vel þess virði.

Ekvador er líka frábært land, hefur svipaða breidd og Perú, plús rjómasprengjuna Galápagosar eyjar. Þvílíkt ævintýri sem það var að sigla um eyjarnar í 4 daga, kafa, skoða dýralífið, njóta náttúrunnar og synda með dýrunum. Fórum reyndar á frekar óheppilegum tíma að því leiti að sjórinn var kaldur og úfinn, en á móti fengum við að sjá nýfædd sæljón sem var frábært. Ætli við förum ekki um sumar næst :)

Perú og Ekvador eru þó mjög fátæk lönd og það var frekar mikið sjokk að koma þangað og sjá hvernig sumt fólkið hefur það. Okkur hefur þó þótt merkilegt að sjá hvað fólk sem hefur það skítt getur verið lífsglatt meðan þeir sem hafa það þokkalegt væla.

Eftir Suður Ameríku flugum við til Asíu, með stopp í LA. Fyrsta land í Asíu var Japan og er höfuðborgin eins og menn vita ein sú dýrasta í heimi. Tokyo er skemmtileg en dýr borgarferð þar sem hægt er að fá einstaka menningu beint í æð.

Tæland er yndislegt land. Þar er hægt að upplifa frábæra menningu, veðrið er gott og þar er ódýrt að vera. Fólkið sem varð á vegi okkar í Tælandi var mjög kurteist og einlægt.

Það var gaman að heimsækja Laos og við kunnum vel að meta sögu landsins. Í Laos fengum við sennilega einhvern þann besta mat í Asíu (sem var líka ódýrastur), en það er kannski alltílagi að segja frá því að við fíluðum matinn í Asíu almennt ekkert alltof vel :o)

Balí er frábær sumarleyfisstaður og ekki skrítið að Ástralarnir fylkist þangað í sumarfrí. Veðrið og verðið er gott og fólkið vinalegt þrátt fyrir svolítið væl.

Nú loks er það Suður Afríka og það er mjög fallegt land, við vitum þó ekki hvort við getum vottað fyrir það að þetta sé fallegasti staðurinn í heimi eins og við höfum heyrt. En það er mjög skemmtilegt hvað sumt af náttúrunni hér er lík íslenskri náttúru. Hér er skemmtilegt að vera og gott veður, en frekar dýrt miðað við Asíu mínus Japan.

En jæja þá er það komið, kærar þakkir fyrir að fylgjast með ferðinni okkar á síðunni og sjáumst fljótlega :o)

hyski skrifaði 3:09 EH, í | Hjal (2)

Cape Town - Suður Afríka

Nú erum við búin að vera í Suður Afríku í nokkra daga. Hér er mjög þægilegt að vera og umhverfið rosalega fallegt. Um daginn ákváðum við að leiga okkur bílaleigubíl og keyra aðeins um svæðið. Þetta er þó ekki frásögu færandi nema af því að hér keyra menn, eins og í Bretlandi, öfugumegin á götunni og stýrið er öfugu megin líka. En við ákváðum að gera þetta frekar en að troða okkur í einhverja rútu og keyra um með hóp, þolum ekki fólk :D

Við byrjuðum á því að keyra að Table mountain og fara uppá fjallið með kláfi (e. cable car). Þetta er virkilega fallegur staður og mjög gott útsýni er yfir alla borgina. Hjördís keyrði, enda mun betri ökumaður að eigin sögn, og hún stóð sig alveg hriiiikkkalega vel ;o)

Næst var haldið á ströndina þar sem við röltum aðeins um. Ákváðum síðan að skella okkur bara í allann pakkann og keyra til Boulders bay þar sem hægt er að sjá afrískar mörgæsir. Eftir góða stund með hressum mörgæsum keyrðum við áfram að Góðrarvonarhöfða (e. Cape of good hope) sem er suðvestasti oddur Afríku. Þetta var skemmtilegt ferðalag.

Hér er helst töluð enska og afríska, þó svo að opinberlega séu 11 tungumál. Enskan er einna vinsælasta tungumálið í Suður Afríku, en það er engin leið fyrir okkur að skilja hana. Hún er töluð með bresk-afrískum hreim, en afríska er germanskt mál (ótrúlegt að hugsa til þess að afríska hafi einu sinni verið málíska í hollensku). Þeir sem hafa reynt að hlusta á Þjóðverja tala nasízku vita að breski framburðurinn getur orðið frekar bjagaður. Bættu síðan við enskum hreim ofan á og það er útilokað að skilja eitt aukatekið orð.

Eins og Hong Kong er asíska London, þá er Cape town afríska London.

Skoðið nýjustu myndirnar og myndskeiðin frá Suður Afríku og Balí

hyski skrifaði 10:50 FH, í | Hjal (0)

nóvember 24, 2005

Komin til Cape Town

Nú erum við mætt til Suður Afríku. Nú fer sumarið að hefjast og það er svipað gott veður hér eins og um sumar á Íslandi. Þegar sólin skín, þá er þetta mjög þægilegt, enginn raki og gola svöl. Þegar sólin sest, þá er nauðsynlegt að taka fram hlýjar flíkur.

Það er töluvert dýrara að vera hér en við eigum að venjast (eftir Asíu), en þó mun ódýrara en á Klakanum.

Hótelið okkar er nokkuð ágætt, morgunverðurinn fínn og frí kjöltutölva sem tengist þráðlausu neti = nú ættum við að geta ruslað inn einhverjum klippum og myndum.

Annars erum við bara í góðum fíling og ætlum að hvíla okkur eftir svefninn í nótt. Það er svo erfitt að vera í fríi :D

hyski skrifaði 8:23 FH, í | Hjal (4)

nóvember 21, 2005

Lannnngt flug framundan

Síðustu dagar á Balí hafa verið mjög skemmtilegir.

Við kynntumst stelpu hérna sem heitir Sarí og er frá Indónesíu. Hún er tiltulega nýflutt hingað til Balí en hefur búið síðustu ár á Jakarta, hún er nefnilega hálf Balinínsk og hálf frá Jakarta. Kíktum með henni síðasta laugardag út að borða og svo á djammið. Það var voðalega gaman að hafa native "farastjóra" í eitt kvöld og við skemmtum okkur konunglega. Byrjuðum á því að borða indónesískan mat og hún fræddi okkur um Baliníska fólkið og menninguna.

Næst var haldið á salsa stað þar sem að við sáum mjög flotta salsa dansa og reyndum að dansa sjálf það sem við lærðum á þeim eina dans-tíma sem við tókum í Ekvador en það var ekki alveg nógu flott miða við hina þannig að við gáfumst bara upp. Næst var haldið á stað sem heitir Kama Sutra þar sem við hittum vinkonur Sarí og fengum okkur nokkra drykki. En þessi staður var algjör snilld og tókum við nokkrar vídjóklippur þar til að setja á netið. Þarna var live hljómsveit sem spilaði þekkt r&b lög alveg snilldarinnar vel og dansarnir voru frábærir.

Annars er dvöl okkar hér á Balí að lokum komið og við fljúgum til Suður Afríku á morgun. Þetta er ekkert smá ferðalag sem við eigum fyrir höndum því flugtíminn er 20 klst en heildar ferðalagið 29 klst með bið á flugvöllum :D

hyski skrifaði 1:54 EH, í | Hjal (2)

nóvember 17, 2005

Paradísareyjan Balí

Nú erum við stödd á Balí.

Það má með sanni segja að þetta sé algjör paradísareyja. Umhverfið er HRIKALEGA fallegt, veðrið frábært (30+ og sól), fólkið vinalegt (allir að bulla í okkur um eitthvað karma) og hótelið mjög flott.

Þegar að við komum hingað fyrst gistum við í 3 nætur á áætis hóteli á Sanur strandlegjunni. Þar var ágætt að vera og fór okkar tími mest í það að liggja í sólbaði við sundlaugina. Urðum reyndar frekar mikið vör við ágengi sölumanna og allir sögðu við okkur "please come look at my store" og ef við hristum hausinn þá sögðu þau "maybe later?". Að heyra þetta á 2 mínútna fresti er frekar leiðinlegt. Síðan eru kallar útá götu alltaf að öskra á mann "Need transport?". Okkur fannst Sanur of dauður staður þannig að við ákváðum að skella okkur á hótel á aðal staðnum hérna á Balí, Seminyak.

Hótelið var búið að lækka í verði um $100 útaf sprengingunum og við fengum því rosa góðann díl. Þegar að við komum á hótelið mætti okkur risastórt utandyra andyri. Eftir svolitla bið fengum við herbergi en okkur fannst nú bara vera einhver hrikalega vond lykt inní því (það leit samt rosalega vel út). Eftir svolítið væl af okkar hálfu fengum við upgrade í miklu stærra herbergi sem var með bæði sturtu og baði. Við erum mjööög ánægð með nýja herbergið okkar, það er alveg HUGE og rosalega fallegt. Náðum síðan að væla út lægra verð og morgunmat sem átti ekki að fylgja með (alltaf að vinna í að fá góðan díl).

Það er rosalega fyndið að tala við fólk sem er frá Balí. Það er yfirleitt svo blaðurgjarnt að það talar Snæbjörn í hel. En fólkið hérna virðist vera mjög trúað, 95% af fólkinu er Hindú trúar og virkilega stundar trúna...annað en á Íslandi. Hér færir fólk fórnir á hverjum degi, sem eru búnar til úr blómum, reykelsum, hrísgrjónum og oft brauði. Það eru líka mjög skemmtilegar trúarlegar hefðir hérna eins og það að kvennmenn mega ekki fara í hofin ef það er "sá tími mánaðarins" hjá þeim. 

Við lentum í því í gær að við fengum símtal á hótelið. Hjördís svaraði og karlmaður á línunni tilkynnti henni það að við hefðu unnið ROSA fínann vinning. En málið er það að við fórum út að borða á veitingarstað um daginn sem leit rosalega vel út, fengum sæti á annarri hæð útá svölum og umhverfið var mjög flott. Síðan kom maturinn, við pöntuðum okkur steikur, og hann var alveg TERRIBLE. Kjötið var eins og hamborgarkjöt og eiginlega bara verra, alveg augljóst að þetta var eitthvað unnið kjöt. Við vorum beðin um að fylla út comment card eftir matinn og þar úthúðuðum við matinn en sögðum þó að staðurinn liti mjög vel út.

En aftur að aðal punktinum, maðurinn í símanum sagði að okkar comment card hefði verið dregið út og værum við búin að vinna 1 viku af ókeypis gistingu á 5 stjörnu hóteli í Balí, Tælandi eða Indlandi og út að borða fyrir 100.000 rp. Við yrðum sótt á hótelið okkar næsta dag til að ná í vinninnginn. Við slógum til og keyrðum á Royal hótel þar sem okkur var sagt að við hefðum unnið þessi verðlaun (nema að við þurfum að borga $100 bókunargjald fyrir hótelið). Það er s.s. ekki mikið að punga út 6 þúsund kalli fyrir viku dvöl á fimm stjörnu hóteli.

Skemmst frá því að segja að þegar við vorum að fara til baka hittum við annan gaur og Hjördís vann aðra viku á öðru hóteli = þurfum ekki að greiða mikið fyrir hótel í næsta fríi.

Besti parturinn er kannski sá sem við gátum nýtt okkur strax, en það var voucher á ágætis veitingastað. Upphæðin var það há að við þurftum að hafa okkur öll við til að ná að snæða upp í peninginn (jafngildi 10 dollara). Skemmst frá því að segja að við náðum ekki að borða upp í þetta, þannig að við tókum restina út í drykkjarflöskum :) Það þarf ekki að segja hver kom með þá snilldar hugmynd að klára hverja krónu af inneigninni...

hyski skrifaði 10:31 FH, í | Hjal (4)

nóvember 15, 2005

Hvað erum við búin að vera að gera síðustu vikur?

Ójá, við erum búin að vera mjög léleg að skrifa á síðuna síðustu vikur en það er bara búið að vera svo mikið um að vera hjá okkur :o)

Við fórum í 15 daga hópferð sem spannaði þrjú lönd, Tæland, Laos og Víetnam. Þessi ferð var rosalega skemmtileg og ekki síst vegna þess að hópurinn sem við vorum að ferðast með var rosalega góður. Við eignuðum nýjar vinkonur frá Bretlandi, þær Tracy og Kristy og kynntumst eldra pari frá USA, og erum eiginlega bara komin heimboð um allan heim ;o)

Ferðin byrjaði í Tælandi og þar finnst okkur alveg frábært að vera. Það er ódýrt að lifa þar og fólkið er mjög vinalegt. Við mættum þangað viku áður en að ferðin hófst og chilluðum í sólbaði og í búðum (og á ís-staðnum Swensen’s). Tæland er ekki bara svona staður sem hægt er að gista á fimm stjörnu hótelum án þess að fara á hausinn heldur er líka mjög skemmtileg menning þar, hægt að skoða endalaust af búdda-hofum og skemmtilegheitum.

Eftir nokkra daga og mikla keyrslu í Tælandi fórum við yfir í hið rólega og tiltulega ný-opnaða land – Laos. Laos er kommúnistaríki en var konungsríki til ársins 1975 þegar konungurinn, drottningin og elsti sonur þeirra voru færð í einhvern helli og drepin (skv. þeim sögusögnum sem við heyrðum, aðra sögu er þó að finna á wikipedia).

Við fórum og skoðuðum fyrrum konungshöllin og vorum alveg heilluð af sögunni um kónginn og fjölskyldu hans. Það má þó með sanni segja að þau söfn sem við heimsóttum í Laos hafi verið alveg gífurlega hlutdræg og þar stóð bara það sem yfirmenn landsins vildu að stæði þar. En gaman samt að upplifa þetta að vera í landi þar sem að fólk má ekki segja hvað sem er og fréttamönnum hefur verið hent í fangelsi fyrir það að vera að spóka sig um. Síðan þegar að við reyndum að spyrja farastjórann okkar (sem er frá Laos) hvernig þetta hefði nú verið með drottninguna og konunginn þá kom á hann fát og greinilegt að honum leið nú alls ekki vel og mátti ekki svara svona spurningum.

En við gistum á nokkrum viðbjóðslegum hótelum í Laos. Hótelum sem voru svo ógeðsleg að maður hefði ekki getað ímyndað sér neitt ógeðslegra. Í einu var lyktin inná baði svo ROSALEGA vond að við urðum að hafa lokað inná bað til þess að sem minnst af lyktinni kæmist út og það var ekki hægt að sturta niður. Ójjjj. Það var svo ógeðfellt að við höfðum ekki áhuga á því að fara í sturtu þar.

Sumir bæirnir í Laos voru samt rosalega skrítnir. Pínulitlir bæir, varla með malbikaðar götur, þar sem var fullt af veitingastöðum sem sýndu gamla Friends þætti í sjónvarpinu og voru með allskonar dóp á matseðlinum (það er því kannski ekki skrítið að heyra að þarna var marga hippa að sjá... haha). En það má ekki gleyma bjórnum, Lao Beer sem er algjört LOSTÆTI... hann er víst hægt að kaupa í Bretlandi og á stöðum hér og þar um heiminn.

Síðan var nú haldið uppá afmæli Hjördísar í Luang Prabang (Laos) og það var mikið fjör. Diskóið lokaði fyrir miðnætti á föstudagskvöldi en bara það að sjá fólkið dansa hópdansa í þessu kommúnistaland var alveg frábært og þar er sú skemmtilega regla að þeir verða að spila 50% innlenda tónlist til að geta spilað 50% af erlendri tónlist (Britney o.frv.). En Laos kipp er mjög skemmtilegur gjaldmiðill og maður gengur um með margar milljónir á sér því hver dollar kaupir um 11.000 kipp. Afmælismaturinn kostaði því fyrir allann hópinn 1.300.000 kipp, hahaha, en það var ekki nema $6-7 á mann með drykkjum.  

Við ákváðum að fljúga frá höfuðborg Laos til Víetnam því við nenntum ekki að sitja rúmar 20 klst í hrikalegri rútu. Hluti af hópnum flaug og hluti keyrði en við þurftum að bera kostnaðinn af því að fljúga sjálf. Í heildina var þessi ferð með Intrepit góð, hópurinn var góður og ekki of stór og staðirnir áhugaverðir. EN það er margt við þessa ferð sem mætti bæta, eins og það að við vorum alltof mikið í lélegum faratækjum. Af 15 dögunum áttu eitthvað um 6-7 að fara í ferðlag í bíl, bát eða lest, en  það er bara alltof mikið. Í samanburði við aðrar ferðir sem við höfum farið í var þessi eiginlega alltof low-budget m.v. það sem við höfðum borgað fyrir hana og alveg pottþétt að Intrepit er að græða ALLTOF mikið. Væri hægt að setja mann í skárri hótel og í betri rútur fyrir það sem maður er að borga. En nóg af væli!

Eftir Laos héldum við til Hanoi í Víetnam. Til þess að lýsa því hvernig við fíluðum það land er best að segja að við íhuguðum að hafa fyrirsögn þessarar greinar “Hanoi höfuðborg helvítis” eða “Víetnam er viðbjóður” haha en þessar fyrirsagnir voru eiginlega bara of neikvæðar þannig að við ákváðum að sleppa því. En við þoldum ekki Hanoi um leið og við komu þangað. Alltof mikið af fólki, alltof mikil læti, alltof mikil umferð, alltof mikið af öllu. Ofaná allt var fólkið ótrúlega ókurteist og það var eins og það almennt liti á túrista sem “scum of the earth”. Ein stelpa í hópnum lenti í mjög dónalegu atviki þar sem maður útá götu potaði í magann á henni og spurði hvort hún væri frá Ameríku. Fleiri lentu í áreiti. Söfnin í Víetnam voru líka mjög léleg, sögðu manni eiginlega ekki neitt og voru algjör tímasóun. Værum til í að fara til Saigon og skoða neðanjarðagöng frá því í Víetnamstríðinu en það var ekki innifalið í þessari ferð. Efa að við nennum að fara aftur til Nam eftir þessa ferð, höfuðborgin var bara of vond. Fundum þó einn stað sem var sem vin í eyðimörk. En það var flottasta hótelið í Hanoi, þar var enginn hávaði, steikurnar góðar og Hjördís komst í súkkulaði hlaðborð :D

Annars er þetta orðið ágætt um ferðina og setjum við inn tengil á síðasta hluta myndanna sem við tókum í þessari ferð.

- Skoða myndir -

hyski skrifaði 2:07 EH, í | Hjal (3)

nóvember 12, 2005

Balí

Nú erum við mætt í góða veðrið á Balí. Sölumenn og leigubílstjórar eru mjög ágjarnir, enda mikil gúrkutíð í gangi. Það eru ekki margir ferðamenn á ferli í þeim parti sem við dveljum.

Tengingin er of hæg og tölvurnar við það að deyja, þannig að við skrifum ekki meira að sinni.

Kveðja,
Við

hyski skrifaði 8:38 FH, í | Hjal (5)

nóvember 8, 2005

Stutt stopp í Siam

Nú erum við búin með ferðina (Tæland, Laos, Víetnam) og verður fjallað um hana í næstu grein.

Vorum að henda inn slatta af myndum, en þar sem tölvunar voru alltaf að kassa og með tóm leiðindi, þá náðum við ekki að klára það ferli. - Sjá nýju myndirnar -

Annars erum við í Tælandi og fljúgum til Hong Kong á morgun.

hyski skrifaði 11:13 FH, í | Hjal (1)

nóvember 1, 2005

Nokkrar myndir sem við tókum ekki

Við erum komin til höfuðborgarinnar. Allt er í góðu standi, tengingin hæg og því liknum við inn á myndirnar þeirra Gríms og Helgu, en þau fóru einmitt í sambærilega ferð.

Smella á þennan link fyrst: http://www.grimuroghelga.com/index.php og svo má kíkja á albúmin.

Tæland http://www.grimuroghelga.com/myndir.php?id_album=7
Laos http://www.grimuroghelga.com/myndir.php?id_album=8
Víetnam http://www.grimuroghelga.com/myndir.php?id_album=9

Annars erum við alvarlega að hugsa um að fljúga til Víetnam því rútan sem við ferðumst með er algjört drasl (gerð fyrir mjög stutta menn + ekki hægt að halla sætum)... en það er víst 20 tíma ferðalag með rútunni til Nam.

hyski skrifaði 1:57 EH, í | Hjal (4)

október 31, 2005

Laos er chillaður staður

Nú erum við í smábæ um 170 km fyrir utan höfuðborg Laos, en við verðum í höfuðborginni í tvo daga áður en við höldum til Nam. Nennum ekki að skrifa meira því við erum svo chilluð. Er eitthvað að frétta af Klakanum?

hyski skrifaði 1:52 EH, í | Hjal (292)

október 29, 2005

Afmæli í Laos

Að eiga afmæli í Laos er alveg rosa gaman og sérstakt :o) Reyndar fór fyrri hluti dagsins bara í það að vera á spítufleka sem menn vilja kalla bát, en það var góð afslöppun og mikill tími til að lesa góða bók. Um 17:00 komum við í fyrrum höfuðborg Laos, Luang Prabang, þar sem við fórum á ROSALEGA skemmtilegan bungalow gististað. Eftir vel tímabæra sturtuferð fór hópurinn út að borða, en það vildi svo skemmtilega til að farastjórinn okkar á sama afmælisdag og ég og því var þetta double birthday celebration. Staðurinn var rosalega huggulegur og maturinn góður (þó stóð uppúr af matnum sticky rice, sem við hyggjumst hefja innflutning á seinna á árinu). Eftir matinn var haldið á diskó. Við þurftum að flýta okkur þangað því það lokaði 23:30. Laos er s.s. ekki mikill djammstaður ;) En það var rosalega gaman að fylgjast með fólkinu þarna inni, það var auðvitað live band og hópdansar sem glöddu okkur óstjórnlega mikið. Síðan var ég svo heppin að fá afmælisköku og ég og farastjórin (Jeff) blésum út kertin saman. Þessi kaka var GRÆN sem var mjög hressandi. Í dag er svo annar í afmæli :o) og við erum bara í afslöppun, ætlum að skoða þennan litla bæ og skella okkur í nudd. Síðan í kvöld verður ballettsýning að Lao-hætti og einhver HRIKALEGA góður matur... svo verður spennandi að sjá hvað við gerum á þriðja í afmæli hahaha. Fyrsti i ammli Annar í ammli Ég vil svo þakka öllum sem óskuðu mér til hamingju með afmælið á síðunni, það var ótrúlega gaman að fara á netið í dag og sjá allar þessar kveðjur. TAKK :o)

hyski skrifaði 4:32 FH, í | Hjal (4)

október 26, 2005

Ferðin mikla

Síðustu dagar hafa hreint út sagt verið frábærir! Fyrsta dag ferðarinnar fórum við í siglingu um Feneyjar austursins (Bangkok). Heimsóttum næst stærsta búddalíkneski í Tælandi og fórum í 14 klst. lestarferð til Chiang Mai. Í Chiang Mai er ýmislegt að gera. Við fórum í fílaferð, nudd í kvennafangelsi, heimsóttum munka og fórum að horfa á Thai boxing. Nú erum við komin í landamærabæinn Chiang Kong og förum til Laos á morgun, sem við sjáum nú bara útum gluggann. Þá tekur við tveggja daga sigling niður Mekong ána. Hér gefur á að líta nokkur myndskeið frá fílaferðinni góðu Á fílsbaki Snæbjörn að gefa dýrinu að éta Hjördís að gefa dýrinu að éta Kítktum á kickbox mót Ronni danski að lemja Tælending Strákar að slást Hittum apaköttinn Menu á staðnum sem við gistum á - Nýjasta myndaalbúmið -

hyski skrifaði 10:26 FH, í | Hjal (11)

október 23, 2005

15 dagar Tæland - Laos - Víetnam

Í dag skiptum við um hótel í Bangkok og hefjum 15 daga ferðina okkar (sem við jú auðvitað keyptum hjá Stúdentaferðum). Fyrsti hópfundurinn er í kvöld og þá hittum við allt fólkið sem verður með okkur í hóp - rosa spennandi.

En þessi ferð verður ábyggilega mjög skemmtileg því við förum í smábæina hérna í Tælandi, s.s. í sveitina, og það verður gott að komast aðeins út fyrir höfuðborgina. Síðan hefur maður heyrt að Laos sé alveg rosalega chillað land en Víetnam algjörlega öfugt - allt brjálað þar. En þetta kemur allt í ljós.

Við munum mjög líklega ekkert getað uppfært síðuna fyrr en eftir ferðina þar sem við búumst ekki við því að sjá mörg netkaffihús á leiðinni :)

-over and out-

hyski skrifaði 5:35 FH, í | Hjal (1)

október 22, 2005

Stuð í Síam

Eins og alls staðar í heiminum, þá er allt til sölu. Bangkok er engin undantekning. What's your poision? Þeir eiga það... nema bara á miklu betra verði en menn eiga að venjast. Þetta á við allt nema tæknivörur. Það er ekki sjaldgæft að sjá feita, hálf sköllótta karla með gullfallegum tælenskum konum... eða ungum strákum (sést ekki alveg nógu vel, kunnum ekki við að skella myndavélinni upp í andlitið á þeim). Maturinn er svo ódýr að það liggur við að það sé borgað með honum. Við förum bæði í klukkutíma fótanudd og Hjördís í handsnyrtingu fyrir um 1.350 krónur. Kíkjum í klukkutíma á netið fyrir 60 krónur. Borðum fína rétti á matsölustöðum og drekkum vatn úr flösku fyrir um 300-400 krónur. Áttum extra mikinn dekurdag um daginn. Vöknuðum seint, fórum í gott nudd, borðuðum frábæran mat, skelltum okkur á netið og svo i bíó. Ekkert venjulegt bíó, heldur VIP bíó þar sem við greiddum 450 krónur fyrir báða miðana. Það sem þetta bíó bauð uppá var: rafstýrður stóll, teppi, púði og þjóna... vantaði bara nuddið :) Fórum loksins til klæðskera. Fundum skemmtileg efni og létum herma eftir sniði sem við áttum. Þetta eins og allt annað er næstum gefins. Tvennar buxur + þrennar skyrtur á 8 þúsund krónur. Það er önnur skálmin á Boss buxunum sem þeir afrituðu :) Fórum í Tuk Tuk um daginn, það var frekar scary. Sjá myndskeið af okkur í Tuk Tuk (frekar dökkt). Hjördís að borga Tuk Tuk gaur. Hrikalegt tæki.

hyski skrifaði 3:09 EH, í | Hjal (0)

október 17, 2005

Bangkok - Ammli

Viljum óska feðgunum Hafþór og Kjartani til hamingju með afmælin! Við erum núna stödd í geðveikinni í Bangkok. Veðrið er þokkalegt (um þrjátíu stiga hiti) og sólarglæta af og til. Erum að reyna finna hótel fyrir utan höfuðborgina í einhverju rólegu umhverfi. Gengur hægt enda netsambandið eins og í gegnum gamlan skóstreng. Bættum inn nokkrum myndum frá Kína ferðinni. Skoða nýju myndirnar frá Kína.

hyski skrifaði 12:13 EH, í | Hjal (5)

október 15, 2005

Hong Kong, beðið eftir flugi

Nú erum við lent í Hong Kong. Þar sem klukkan er stuttu eftir miðnætti og við eigum flug snemma í fyrramálið til Bangkok (eftir 8 tíma), þá höfðum við hugsað okkur að kíkja á flughótel. Þau eiga til að vera ódýrari og nær flugvöllum en önnur hótel. Við töltum yfir á hótelið og spurðum hvað þessir 8 tímar kostuðu. Verðið var um 20.000 krónur, en það er einmitt sama verð og á nýjasta iPod-num frá Apple. Það var nú ekki erfitt að taka ákvörðun. Við erum stödd á flugvellinum í góðum fíling. Hjördís er sofandi og ég er hér með besta vini mínum... Internetinu.

Við erum s.s. að yfirgefa kommana. Nú höfum við ekki mikla reynslu af Japan og Kína, en við höfum samt eytt nokkrum dögum í höfuðborgunum. Og hver er munurinn? Hann er gríðarlegur, bæði í framkomu og útliti.

Framkoma & hátterni

  • Japanir eru gríðarlega kurteisir meðan Kínverjar eru það ekki.

  • Japanir rekast ekki utan í þig, Kínverjar gera það. Ef Kínverjinn rekst utan í þig, þá biðst hann ekki afsökunar... dálítið líkt mörgum Íslendingum :)

  • Ef Kínverji nálgast þig af fyrra bragði úti á götu, þá vill hann fá peninga frá þér. Japaninn vill bara tala við þig.
  • Kínverjar eru alltof ákafir sölumenn og lentum við í því að vera í verslunargötu þar sem við sýndum jólaskrauti áhuga og konan tók í höndina á Hjördísi og ætlaði ekki að hleypa henni í burtu.

Útlit
  • Japanir eru smágerðir meðan kínverjar eru þykkir. Svolítið eins og Íslendingar eru stórgerðir og Ítalir eru smágerðir. Beinabyggingin er allt önnur.

  • Hnakkinn á Kínverjunum er oft á tíðum flatur, tókum ekki eftir því hjá Japönunum.

  • Japanir eru í nýjustu tísku, kínverjar eru ekki í tísku.

Eitt skemmtilegt eiga þeir samt sameiginlegt, en það er alveg ótrúlega algengt að sjá bæði Kínverja og Japani hlaupa eins og þrjú til fjögur skref með hendur meðfram síðu.

Auðvitað er ekkert hægt að alhæfa um fólk eftir að hafa eytt nokkrum dögum í landi, en þetta var okkar upplifun á þessum stutta tíma.

Við vorum komin með ákveðna ræðu þegar Kínverjinn nálgaðist okkur og sagði, "Welcome to Beijing. I'm an english student and want to practice my english". Þá sögðum við, hvað ertu að selja? Ertu kannski nemandi í skólanum hjá Lísu og vilt fá okkur í gallerýið til að skoða myndir. Við erum búin að kaupa það sem við ætlum að kaupa. Þá brostu þau, misstu allan áhuga á að tala við okkur og snáfuðu í burtu með skottið milli lappanna.

Kínverjarnir voru samt ekki alveg alltaf á höttunum eftir peningum, því þeir áttu líka til að biðja um að fá mynd af sér með Hjördísi. Held að hún hafi fílað sig sem celeb, enda voru þetta amk tvær tylftir mynda :)

Bílakynning í Kína
Hress strákur

Bílakynning í Japan
Hressar stelpur

Jæja, nú er ég farinn að sofa... eða eitthvað. Tæland er framundan!

hyski skrifaði 8:06 EH, í | Hjal (2)

október 13, 2005

Kína - Peking

Þar sem við erum frekar mikið á flugvöllum, þá eigum við til að bregða á leik, sjá myndskeið.

Nú erum við búin að vera í Peking í nokkra daga. Það helsta sem við höfum afrekað er að skoða forboðnu borgina og horfa á leikfimi-snillinga. Við tókum nokkrar myndir og þær er hægt að nálgast í myndaalbúminu.

Það er óhætt að segja að Peking og Hong Kong séu ólíkir staðir. Það voru allir í nýjustu tísku í HK meðan allir eru í kaupfélagsfötum í Peking. En það er ekki bara munur á útliti fólksins heldur líka á framkomu, því hérna er fólkið alls ekki jafn kurteist og í Japan.

Hittum kínverska konu sem bjó á Íslandi í ár og keyptum af henni nokkur listaverk. Hún vinnur sem kennari og það fyndna er að við erum bara eiginlega alltaf að hitta hana fyrir tilviljun, útá götu og í búðum... kannski ekki skrítið þar sem hún er með skrifstofu við hliðin á hótelinu okkar.

Annars erum við að fara í dags ferð á morgun, en við ætlum að skoða múrinn mikla.

- Skoða nýjustu myndirnar -

hyski skrifaði 2:50 EH, í | Hjal (3)

október 11, 2005

Asíska London

Nú erum við búin að vera í Hong Kong í fjóra daga. Þetta er miklu vestrænna en Tokyo, matseðillinn er t.d. mjög oft á ensku... það mætti kannski kalla þetta asísku London. Enda var þetta undir Breskri stjórn í 100 ár.

Tískan er allt öðruvísi. Hér slá stelpurnar hnjánum ekki saman þegar þær ganga og strákarnir eru ekki eins og þeir séu klipptir út úr Manga-mynd. En það er alveg ótrúlegt hvað það eru margar merkja-búðir hérna, alveg útum allt og fullar af fólki að versla.

Við kunnum mjög vel við okkur hérna í HK, en erum ekki mikið búin að túristast, þar sem við þurftum að vinna svo mikið :) Vinnan fólst í því að verða okkur út um vegabréfsáritun til Indónesíu, bóka flug til Peking og finna gistingu. Nú erum við búin að læra að bóka aðeins eina til tvær nætur á hótelum og framlengja ef við kunnum vel við herbergið. Einnig fór drjúgur tími í rannsóknarvinnu við að finna rétta myndavél og við keyptum alveg YNDISLEGA SVARTA FALLEGA vél sem heitir Panasonic LX1 og hefur Leica linsu...ójá japanskt hugvit + linsa frá Þjóðverjanum klikkar ekki. Nú þurfum við bara að fara taka einhverjar myndir til að sýna dýrðina.

Á eftir fljúgum við til Peking, það verður væntanlega mun kínveskara en Hong Kong... enda heilum fjórum tímum með flugvél í burtu. Þar verður mikið túristast og örugglega margar myndir teknar ;)

Over and out.

hyski skrifaði 4:28 FH, í | Hjal (1)

október 7, 2005

Síðustu dagar í Tokyo

Áður en við byrjum á Tokyo-pistli viljum við óska Arndísi Hafþórsdóttur til hamingju með 7 ára afmælið og Konráði Birni Ketilssyni til hamingju með viku afmæli!! Veiiiii veii!

Við erum svolítið lost in translation hérna í Japan (höfum reyndar ekki séð myndina ennþá en teljum okkur skilja innihaldið). Það kom okkur alveg rosalega á óvart hvað enskukunnátta er lítil hér verandi hámenntuð og rík þjóð.

Annars er búið að vera rosalega skemmtilegt að vera hérna. Ótrúlega gaman að sjá hve flott arkítektúrinn er og rosalega háar byggingar. Síðan er líka mikil upplifun að sjá ljósaskiltin útum allt :D

En við erum búin að nýta tíma okkar hér vel, fórum í electric city þar sem við fórum í eina af stærstu raftækjaverslunum í heimi (það var alveg ógurlega skemmtilegt fyrir Hjördísi...hahaha). Klippa úr stærstu búðinni. Önnur klippa. Síðan fórum að við skoða mannlífið í Ginza hverfinu þar sem ríka fólkið verslar, það er vænst frá því að segja að önnur hver kona þar var með Louis Vuitton uppá arminn og nýkomin úr manicure ;) Síðan fórum við í Disneyworld og hittum Mikka og vini hans. Loks fór síðasti dagurinn í það að skoða musteri og fara í heitar laugar sem komu okkur svolítið á óvart.

Eitt sem við urðum þó fyrir vonbrigðum með hér í Japan er hvað þeir eru rosalega miklir reglu-kallar. Við lentum nefnilega í því að ruglast í lestarkerfinu og við vorum tæpan klukkutíma að leiðrétta það, því hér er ekki til hugsunin "við skulum bara redda þessu" og við vorum skömmuð fyrir að ruglast og beðin um að gera það ekki aftur...haha. Þetta var ekki nema 150 ISK virði en við vildum nú ekki leyfa þeim að komast upp með að græða á okkur af því að við gerðum mistök... þetta var svona princip mál.

Fólkið hérna er alveg rosalega kurteist og það er búið að vera gaman að upplifa það... gæti jafnvel verið að maður fari héðan kurteisari manneskja :) Fólkið í búðunum brosir og hneigir sig. En það er svolítið skrítið að sjá hvernig tískan hér er allt önnur en í Bandaríkjunum. Hér eru stelpur í buxum sem eru þröngar alla leið niður, kiðfættar, innskeifar og draga lappirnar. Það væri virkilega gaman að geta spurt einhvern hvort þetta sé tískan (að vera innskeif) því við sáum auglýsingu í einhverju blaði þar sem hægt var að fara í aðgerð til að fá lappirnar til að vera meira saman... getum nú ekki ímyndað okkur að þetta sé vinsæl aðgerð annarsstaðar :D

Fórum í gærkvöldið að borða á stað sem við römbuðum á, en hann var mjög sérstakur. Það voru sér herbergi, alveg pínulítil, þar sem maður sat (sem sagt ekki í sal með öðru fólki eins og maður er vanur) og annaðhvort krípur maður í þessu herbergi eða er í stærra herbergi þar sem er pláss fyrir lappirnar. Síðan fær maður matinn og eldar hann sjálfur á gas-grind sem er inní þessu litla herbergi (það er því auðvelt að sjá að það varð mjög heitt í þessu herbergi haha). En þetta var rosalega skemmtileg lífsreynsla.

í heildina er þetta búið að vera rosalega skemmtileg vika hérna í Japan, við erum búin að upplifa mikla menningu og sjá ýmislegt nýtt.

- Nokkrar nýjar myndir frá BNA og Japan -

Á morgun fljúgum við svo til Hong Kong í Kína og erum að reyna að finna okkur hótel á netinu því við erum ekki með neitt bókað, síðan ætlum við að reyna að fljúga til Peking eftir kannski 2 daga.

hyski skrifaði 10:07 FH, í | Hjal (33)

október 3, 2005

Tokyo

Lentum í Japan í gær, alveg dauðþreytt eftir frekar erfitt 12 tíma flug.

Fundum okkur hótel og völdum að gista í "japanese style" herbergi sem var frekar spes vegna þess að maður þurfti að beygja sig til að þvo sér um hendurnar í vaskinum (meira að segja Hjördís) og Snæbjörn rak hausinn í þegar að hann var að labba inná klósett.

Vorum mjög þreytt því það er mikill tímamunur og fórum því að sofa snemma. Vöknuðum alveg ofur hress kl. 5:45 í morgun, hahaha, oft svolítið erfitt að venjast þessum tímamismunum. En við fengum okkur bara morgunmat og skelltum okkur á netið til að finna betra hótel því okkur fannst hitt frekar lélegt og dýrt. Fundum alveg rosa flott hótel og fáum 60% afslátt í gegnum lastminute deal sem við erum svakalega ánægð með. En ætlum að drífa í því að skipta um hótel og fara svo að skoða þessa forvitnilega borg.

- Þetta er hótelið -

hyski skrifaði 11:29 EH, í | Hjal (5)

október 1, 2005

Nýtt barn - L.A.- Framköllun

Til að byrja með langar okkur til að óska Kristínu (systir Snæbjarnar) og Katli (maka hennar) til hamingju með nýfæddan son. Skoða fjölskylduna. Þetta er bara gaman!

Nú erum við í L.A. í góðum fíling. Veðrið leikur við okkur og hótelið er algjör snilld. Það var þokkalegt sjokk að koma hingað þar sem verðlagið er hrikalegt... hvernig ætli það verði að koma á klakann?

Við vorum að framkalla myndir, hægt er að nálgast þær í eftirfarnandi albúmum:
Miðja heimsins & Cotopaxi í Ekvador
Myndir sem við tókum á filmu á Galapagos

Annars er Hjördís bara í góðum fíling í einhverju risa verslunarmiðstöð og ég sit á netkaffihúsi að setja inn þessar myndir og fara í gegnum póstinn.

Okkur langar til að þakka fyrir hjalið, það er alltaf gaman að fá svona skemmtileg viðbrögð.

Á morgun tekur maraþon-flug við, en þá fljúgum við til Tokyo (stundum er eins og við eigum heima á flugvöllum og í flugvélum).

hyski skrifaði 8:30 EH, í | Hjal (9)

september 29, 2005

Galápagos

Hver elskar ekki dýralífsmyndir? Ímyndaðu þér að taka þáttí einni slíkri ;)

Galápagos er ævintýri líkast að heimsækja og nutum við vel þeirra fjögurra daga sem við áttum þar.

Við sigldum um eyjarnar í bátnum Eden sem tekur 16 farþega (+sex starfsmenn). Við vorum svo heppin að fá káetu við hliðiná vélarúminu þannig að Hjördís svaf með eyrnartappa allan tímann :)

Þetta átti að heita fyrsta-klassa bátur en var mjög fábrotinn. Það er hægt að fara einum klassa fyrir ofan en það eru engin skemmtiferðaskip eins og þekkjast í Karabíska hafinu ;) haha

Verandi frekar lítill bátur tók hann á sig mikinn öldugang og fundum við nokkrum sinnum fyrir sjóveiki. Vöknuðum nokkrar nætur vegna veltings og vorum við það að detta úr rúminu. Þótt þetta hljómi eins og mikið væl þá var þetta bara helvíti fínt, cózý að vera á litlum bát og gott að vera ekki í of stórum hóp. Við vorum sem sagt bara mjög ánægð með þetta :)

Dagskráin á hverjum degi var nokkurnvegin eins

  • Vakna klukkan 6:50 og borða morgunmat

  • Fara á einhverja eyjuna (San Cristobal, Espanola, Floreana, Santa Cruz, Santa Fe). Ganga um, skoða dýralífið og náttúruna

  • Fara til baka á bátinn og snorkla í sjónum

  • Borða hádegismat og sigla á aðra eyju

  • Fara út í eyjuna og labba um

  • Til baka á bátinn og snorkla aftur

  • Fundur

  • Kvöldmatur og sofa

Eins og sést á dagskránni var mikið um að vera á hverjum degi en ferðin var bara skemmtilegri fyrir vikið. Við fengum að sjá fullt af dýrum og þar ber helst að nefna sæljón (m.a. nýfædd), sjávarskjaldbökur, ýmiskonar eðlur (iguana), bleika flamingó, höfrunga, hákarla, allskonar fiska, risa landskjaldbökur og margar tegundir af fuglum (erum nú ekki mikið áhugafólk um fugla og því verða tegundirnar ekki taldar upp).

Við snorkluðum heilmikið og það var alveg magnað. Við vorum svo hrifin af því að við fórum nánast að snorkla tvisvar á hverjum degi í ísköldum sjónum (það voru nú ekki allir sem létu plata sig úti það... haha). Þegar maður fer að vera í sjónum að synda með dýrunum, þá er eins og nýr heimur opnist. Við syntum m.a. með sæljónum, skjaldbökum, allskonar fiskum og hákörlum. Okkur var nú sagt að vera ekkert hrædd við hákarlana því þeir borða víst bara grænmetisætur...múhahahaha en nei svona í alvöru talað þá ráðast þeir víst ekki á fólk þarna, frekar merkilegt ;)

Næstsíðasta daginn fórum við svo að KAFA :D Við fórum tvö með "Dive Masternum" og það var alveg GEGGJAÐ! Við vorum svolítið stressuð áður og þurftum að vakna kl. 5:40 sem hjálpaði nú ekki til. En þegar að við vorum komin í sjóinn og á 12 metra dýpi var þetta frábært, sáum fiskana mjög nálægt og síðan komu tvö ung sæljón að skoða okkur. Sáum líka einhvern voða sérstakann fisk sem við náðum tape-i af (Leigðum nefnilega rosalega góða myndavél á bátnum) en við erum bara ekki nógu vitur til að vita hvaða fiskur þetta er ;) En við köfuðum í 45 mínútur og Meistarinn sagði að við hefðum staðið okkur mjög vel... vúú húú

Seinna sama dag var mjög gott veður og við þurftum að sigla í 4 klst., þannig að við lögðum okkur á dekkinu. vöknuðum síðan við það að fólk var að kalla "höfrungar, höfrungar". Við fórum að horfa á höfrungana synda meðfram bátnum sem var mjög skemmtilegt, en það er eiginlega eins gott að fólkið vakti okkur því við erum vel grilluð í framan í dag. Haha!

Annars var þetta alveg yndisleg ferð. En ferðalagið heldur áfram og við fljúgum í fyrramálið til L.A. og segjum þar með skilið við Suður Ameríku. Eftir tvær nætur í L.A. tekur Asía við.

Hér koma nokkur myndskeið

- Hér eru myndirnar sem við vorum að bæta við -

hyski skrifaði 11:52 EH, í | Hjal (1)

september 25, 2005

Síðustu og næstu dagar í Ekvador - hápunktinum náð?

Áður en greinin hefst langar okkur að kasta kveðju á pabba Snæbjarnar en hann á afmæli 27. september næstkomandi. Til hamingju með ammli'!

Það er nú bara þannig að þegar nýtt ævintýri tekur við á hverjum degi, þá er takmarkaður tími til tölvuvinnslu og því verða myndirnar sem eiga við textann hér að neðan birtar seinna.

Í gær fórum við á stað sem kallaður er miðja heimsins. Það merkilega er að þessi staður er ekki í miðjunni. Jú breiddargráðan er næstum því núll (í miðjunni), skeikar víst um 300 metra... en þar sem minnismerkið er komið upp og það er reist á fornum grunni, þá verður þetta klúður ekki leiðrétt nema sem neðanmálsgrein í einhverjum plöggum. Minnismerkið er komið til að vera! Lestu allt um miðbaug á wikipedia.

Eini sanni miðpunktur jarðar (þá erum við ekki að tala um heiminn eins og vinir okkar orða það), er á breiddarbaugi 0 og lengdarbaugi 0. Þessi punktur hefur víst engum sérstökum tilgangi að þjóna, en hann er í Atlandshafi um 611 km suður af Ghana og 1078 km vestur af Gabon. Djöfull var þetta leiðinlegur fróðleikur, var það ekki? Gulli þetta var fyrir þig... en þú vissir þetta náttúrulega :)

Nú þegar við höfðum lokið okkur af á gervi-punktinum, þá var haldið í danskennslu. Hjördísi grét þetta út, en hún vill meina að Snæbjörn hafi haft lúmskt gaman af.

Í dag fórum við til Cotopaxi, en þetta er víst hæsta virka eldfjall á jörðu sem hefur snjó, um 5,897 metrar. Þetta var bara eins og vera kominn aftur á klakann, enginn gróður, kalt og mikill ís. Eins og áður sagði, þá tókum við myndir sem verða birtar seinna.

Höfum takmarkaðan tíma, en á morgun verður vaknað snemma til að fara til Galapagos, jé!

hyski skrifaði 3:01 FH, í | Hjal (8)

september 23, 2005

Ekvador

Við erum komin... bara svona smá status notification.

hyski skrifaði 3:05 FH, í | Hjal (3)

september 21, 2005

A leid til Ekvador

A morgun fljugum vid til Ekvador, erum akkurat thessa stundina a flughoteli rett fyrir utan São Paulo. Halfpartinn ad bida eftir fluginu okkar i fyrramalid. Nu er nog komid af Brasiliu, thetta land heilladi okkur ekki eins mikid og vid bjuggumst vid (styttan var minni en vid heldum og folk getur bara farid til Portugal til ad fa svipadan filing).

Erum gedveikt spennt fyrir Ekvador og hlokkum ekkert sma til ad sja oll dyrin a Galapagos.

hyski skrifaði 9:23 EH, í | Hjal (1)

september 19, 2005

Stór dagur

Í dag er sérstakur dagur, pabbi minn (Hjördísar) á afmæli... til hamingju með afmælið pabbi :D

Heyrði í fjölskyldunni í gær, alltaf gaman að hringja heim og þar voru allir hressir. Planið hjá pabba á afmælisdaginn var víst að fara að veiða... alltaf stuð á sjónum ;)

Það var barasta sól í Ríó í tilefni dagsins og við lágum heilmikið í sólbaði. Snæbjörn náttúrulega með miklu meiri lit en ég því hann er svo fljótur að fá lit, en það var mjög þægilegt að slaka á og liggja í sólbaði.

Í tilefni þessa afmælis- og sólardags fórum við á sjávarréttarstað (ok sannleikurinn er sá að ég er búin að reyna að draga Snæbjörn með mér á sjávarréttarstað heillengi og nú tókst það loks) og það var nú ekki slæmt að gæða sér á humar, rækjum, kolkrabba og hinum ýmsu sjávarréttum, samt ekkert betra en humarinn sem pabbi er með um jólin :)

- Skoða myndir frá sjávarréttarstað -

Annars eigum við bara einn dag eftir hér í Ríó því á miðvikudaginn höldum við til Sao Paulo og ætlum að eyða einum degi þar. Síðan á fimmtudaginn fljúgum við til Ekvador :)

- Talað við Jesú -

hyski skrifaði 6:13 EH, í | Hjal (4)

september 18, 2005

Brasilía - Ríó

Við erum komin til Ríó og búin að vera hér í nokkra daga. Veðrið er búið að vera frekar leiðinlegt en við fengum þó einn sólardag sem við nýttum í að kíkja á ströndina. Á inka-trailinu kynntumst við frábærum hjónum, Chien og Amy, frá Ástralíu. Þegar að við vorum búin að spjalla svolítið við þau komumst við að því þau yrðu í Ríó á sama tíma og við og var ákveðið að vera í bandi þegar til Ríó væri komið. Þetta stóðst þokkalega því við enduðum á því að vera á sama hóteli og þau, Pestana. Við fórum út með þeim að borða fyrstu tvö kvöldin en síðan flugu þau til höfuðborgarinnar. Seinna kvöldið fórum við á frábærann steikarstað sem var hálfgerður buffet (hlaðborða) staður. Á staðnum náði maður sjálfur í meðlæti og forrétti, en starfsmenn koma síðan í röðum með rosa flott nautakjöt og skera á diskinn... mmmm þetta var alveg hrikalega gott. Síðan í dag þvoðum við þvott og fórum með myndir í framköllun því það er rigning úti. Vonum bara svo sannanlega að veðrið fari að skána næstu daga svo við getum chillað svolítið í sólbaði ;) En við erum búin að uppgvöta alveg frábærann, ódýrann veitingarstað hérna. Hann heitir Kilograma og þar er hlaðborð. Það besta er að þeir eru með mjög gott nautkjöt á spjóti sem þeir grilla með grófu salti og maður biður þá bara að skera eins mikið og maður getur etið. En þetta er ekki hefðbundið hlaðborð þar sem maður borðar eins og maður vill fyrir fast verð heldur fær maður sér og síðan er það vigtað ... og það besta er að þetta kostar ekki nema um ISK 300 á mann og með drykkjum um ISK 350 (fyrir ca. 355-395 gr á mann) :D alltaf gaman að borða góðan mat. Við erum búin að borða á þessum stað í þrígang :) Um Ríó er því hægt að segja að þetta er góður staður til að vera á matarlega séð, hægt að fá nokkuð ódýran og góðan mat. En þessi borg er orðin mjög túrista-vædd sem er ekki eins skemmtilegt. Leigubílarnir eru mjög dýrir og á heildina litið er þetta ekki ódýr staður til að vera á (hann er þó töluvert ódýrari en Ísland). En að vera hérna í sól og blíðu er algjör snilld, strendurnar flottar og mjög hlýtt og þægilegt. Síðan er náttúrulega ýmislegt að sjá eins og styttan fræga af Jesú og stærsti fótboltavöllur í heimi :D Kveðja frá Ríó! - Nokkrar myndir frá Ríó -

hyski skrifaði 12:15 FH, í | Hjal (3)

september 17, 2005

Perú, lokaorð... í bili

Þetta land er mjög fátækt og atvinnuleysi er um 50%. Við urðum strax vör við þessa miklu fátækt enda reynir fólk að gera business úr hverju sem er. Öfgafyllsta dæmið sem við sáum var strákur sem var með vigt og vigtaði fólk gegn gjaldi (yrði sennilega ekki stór bransi á Íslandi nema fitumæling fylgi með). Mörg hús eru ókláruð og líta út eins og hálfgerðar rústir. Útskýringin á þessum húsamálum er að fólk klárar ekki að byggja húsin því þá þarf það ekki að borga fulla skatta af þeim.

Veðrið í þessu landi er mjög fjölbreytilegt en hér í höfuðborginni Lima er það sko ekkert spes. Rudy leiðsögumaður sagði okkur að það væri þoka og leiðinlegt veður í níu mánuði á ári. Við getum staðfest það að ekki er búið að sjást til sólar hérna allann tímann í Lima og það hefur legið þoka yfir borginni. Einnig er mjög kalt hérna þó það mælist 17 stiga hiti en það er útaf rakanum.

Machu Picchu er einn mikilfenglegasti staður sem við höfum séð. Amazon skógurinn og aðstaðan sem við höfðum var frábært, hittum apa og mörg önnur skemmtileg dýr. Verðlag er mjög hagstætt, því er óhætt að mæla með heimsókn til Perú. Skellum inn einhverjum myndskeiðum úr ferðinni þegar við komum á Klakann.

- Skoða myndir úr Amazon -

hyski skrifaði 4:46 FH, í Peru | Hjal (1)

september 14, 2005

Inca Trail and Jungle (11 dagar)

Nú er fyrsta hópferðin okkar á enda, hún var keypt hjá Stúdentaferðum og kunnum við fólkinu þar miklar þakkir.

Þetta var alveg frábær ferð sem skiptist í fjögurra daga stranga göngu til Machu Picchu og tveggja daga heimsókn í Amazon skóginn. Til að byrja með má segja frá því að við lentum í alveg frábærum hópi, reyndar vorum við svo mörg að okkur var skipt í tvo hópa, en við kynntumst slatta af hressu skemmtilegu fólki.

Ferðin byrjaði í Lima á því að við skiptum um hótel, fórum frá Miraflores hverfinu á hótel niðrí bæ. Þar hittum við Rudy sem fór með okkur í rölt um bæinn, gaf okkur froskasafa og sagði okkur ýmislegt fróðlegt.

Eftir náin kynni við Lima og froska var flogið til Cuzco sem er lítill bær í 3.300 metra hæð. Þar röltum við með innlendum farastjóra sem sýndi okkur bæinn og sagði frá sögu þess. Um kvöldið var síðann fundur um Inka trailið með farastjóranum Santiago sem var rosalega fyndinn karl, talaði ensku með miklum spænskum hreim og sagði oft og mikið “my friends” og "hækers".

Inka trailið byrjaði síðan næsta dag kl. 07:00 þar sem við vorum sótt og keyrð í þrjá tíma með rútu. Gangan hófst síðan um kl. 10:00 og var sá dagur bara nokkuð þægilegur, mikið gengið en ekkert upp á móti og því var þetta góð upphitun.

Dagur tvö byrjaði þannig að við vorum vakin kl. 06:00 og var það lang erfiðasti dagurinn í göngunni. Við byrjuðum á því að labba í rúmar 3 klukkustundir (sem virkuðu eins og 8 klst.) upp gríðarlega bratt fjall. Til að gefa smá mynd af því hvernig brattasti parturinn var, þá er þetta svipað að labba upp tröppurnar hjá kirkjunni á Akureyri aftur og aftur í 3 tíma, nema hvað að hvert þrep amk þrefalt hærra og loftið helmingi þynnra (ok, satt að segja eru Akureyratröppur djók miðað við þetta).

Við vorum úrvinda þegar við komum á hvíldarstaðinn. Enginn griður var gefinn, því eftir smá hvíld lögðum við aftur af stað og þá fór háfjallaveikin að segja til sín. Við vorum bæði orðin mjög þreytt og nálguðumst hæsta punktinn í ferðinni sem er 4.200 metrar yfir sjávarmáli. Þetta tókst loksins eftir sennilega um 2,5 klst gögnu upp mjög bratt fjall.

Þessi hæsti tindur ferðarinnar er jafnframt kallaður “dead woman´s pass”, þetta mætti misskilja þannig að konur geta ekki gert þetta en það er nú fjarri lagi því þessi tindur fékk þetta nafn vegna þess að menn telja sig sjá konu í fjallinu, við sáum það nú samt ekki. Eftir þetta tók við mjög brött ganga niðurávið sem reyndi líka ágætlega á þótt það væri miklu auðveldari en klifrið upp fjallið. Þegar þessi dagur var búinn lögðumst við bara inní tjald og sváfum í um 2 tíma, borðuðum síðan kvöldmat og fórum aftur að sofa og náðum um 9 tíma svefni.

Næsta dag vöknuðum við hress eftir góðan svefn og vildum komast af stað. Dagurinn byrjaði með svolítilli göngu uppávið en það var ekkert miða við síðasta dag þannig að við röltum þetta í góðum fíling. Þessi dagur var mjög skemmtilegur vegna þess að við sáum margar sögulegar byggingar og fræddumst um Inkana. Myndbandið fræga fæddist á þessum degi, fjallið sem sést í bakgrunni er hið fræga Machu Picchu fjall. Við komum úrvinda á tjaldsvæðið og skelltum okkur á barinn, enda fyrsti staður á leiðinni sem seldi kalda drykki.

Hápunkturinn var síðasta daginn þegar við vöknuðum klukkan 03:30 og hlupum af stað til Machu Piccu. Sumir réðu ekki alveg við hraðann og þurftu að draga sig í hlé, en ekki við. Eftir um tveggja tíma göngu/hlaup komum við að staðnum þar sem við áttum að fylgjast með sólarupprás í borginni frægu, en því miður var þoka og rigning. Eftir þessi vonbrigði hlupum við tvö af stað með leiðsögumanninum og komum manna fyrst að Machu Picchu.

Þeir sem tóku lestina voru að vísu mættir, því hliðin opna klukkan 05:30 og þeir sem komu með lestinni þurfa bara að ganga nokkra metra meðan þeir sem fara okkar leið þurfa að ganga í 3 tíma áður en þeir koma á svæðið.

Machu Picchu er magnaður staður, gríðarlega fallegur og varla hægt að lýsa honum með orðum, skoðið því myndirnar eða farið sjálf :) Þó hefðum við ekki viljað missa af göngunni miklu þótt erfið hafi verið, því í göngunni er margar fornar Inka-byggingar að sjá.

hyski skrifaði 9:58 EH, í | Hjal (3)

Myndbandið komið

Jæja, þá er myndbandið komið. Snæbjörn og Hjördís lentu í einhverjum vandræðum að setja það inn, svo að ég er að setja það inn fyrir þau.

Myndbandið má sjá hér!

p.s.
myndbandið er snilld!

egill skrifaði 8:59 EH, í | Hjal (6)

september 9, 2005

Machupicchu massað

Nú erum við búin að sigra Machupicchu! Klifum í yfir 4000 metra hæð, fólk var ælandi og skælandi... en við hlógum alla leiðina. Þetta var ekkert smá létt! Snæbjörn hafði smá áhyggjur af löppinni, en kálfinn rifnaði einum mánuði áður en gangan hófst (sjá mynd). Leiðsögumaðurinn okkar benti okkur á að eina leiðin til að vera örugg með að klára gönguna, væri að drekka frosk, sem við og gerðum. Framkölluðum nokkrar filmur áðan og Egill massaði upp myndagallerý fyrir okkur. Takk Egill, þú ert æði! Ferðasagan verður sögð á næstunni, en þar sem við höfum gríðarlega takmarkaðan tíma til að hanga á netinu, þá látum við duga að henda inn nokkrum myndum og einni stuttmynd sem við gerðum með vini okkar Jónatani (tæknilegir örðuleikar, komum stuttmyndinni ekki inn þessa stundina). Einnig höfum við ákveðið að hafa tileinka einu albúmi þeim klósettum sem verða á vegi okkar (skoða klósett albúm). Á morgun er það Amazon, jé!

hyski skrifaði 4:37 FH, í PeruLima | Hjal (7)

september 4, 2005

Cusco - Machu Picchu

Nu erum vid farin ur thokunni i Lima og maett til Cusco. I fyrramaldi hefst gangan til Machu Picchu. Thad verdur hressandi.

Hofdum akvedid ad skrifa hrikalega mikid um gonguna miklu og stemminguna i kringum hana. Thar sem Cusco var an nettengingar thegar vid maettum a internet stadinn fyrr i dag (linkurinn var nidri i fleiri fleiri tima), tha verdur greinin goda ad bida betri tima. Einhver kann ad spyrja hvers vegna vid thrumum thessari grein ekki bara inn nuna, tha erum vid half lomud af neyslu kokalaufa og theirri gridarlegu haedar (3000 metrar) sem vid erum i.

Ahugasamir geta lesid um Cusco a sidunni sem linkurinn visar a.

Myndavelamalid mikla - news flash
Nu erum vid komin med magnada analog kodak myndavel, thetta er s.s. vel sem notar filmu. Verdid a litlum minniskubbi var faranlegt (Sony er vist frekar toff merki i Peru). Faum okkur einhverja magnada stafraena i asiu. Hvad segja menn annars um filmur, eru thaer ekki bara hvort sem er mikid betri :) Litid mal ad thurma thessu a CD og daela yfir a netid... nu fara hlutirnir ad gerast!

hyski skrifaði 3:28 FH, í | Hjal (4)

september 2, 2005

Nokkrar myndir

Vorum á rölti og rákumst á einhverja vitleysinga. Seinna kom í ljós að þetta voru Íslendingar sem áttu ágætis myndavél. Þar sem okkar er glötuð sáum við okkur leik á borði og fengum þau til að taka eins margar myndir af okkur og minniskortið þeirra leyfði :)

Hægt er að sjá afraksturinn á http://ljosmynd.ari.is/album30?page=3. Þessir Íslendingar reyndust síðan bara ágætir, þannig að við fengum bæði myndir og fínan félagsskap.

Erum ekki enn búin að kaupa minniskort í cameruna, ætlum að kíkja í eitthvað stórt MOLL á morgun og tékka á þessu. Annars virðast vera einhver gríðarleg gjöld á svona drasli því verðið er þrefalt á við Klakann.

Stemming úti á götu
Gleði

Hjördís að segja hæ
Hæ mamma & pabbi

hyski skrifaði 6:03 FH, í | Hjal (6)

ágúst 31, 2005

Verðlag í Lima

Þakkir fær Davíð fyrir að redda okkur (kbdic.kbd) lyklaborðsuppsetningu fyrir windows 98se. Nú getum við skrifað með Íslenskum stöfum, jé!

Hér í Lima er ROSA gott að vera. Fólkið er vinalegt, margt fallegt að skoða og jú maturinn ódýr.

Gjaldmiðillinn hér er Soles og formúlan til að finna íslenskt verð hratt og örugglega er með því að margfalda með 20. En fyrir okkur sem eru ekki súperbrain er gott trick að bæta við einu núlli og segja síðan sinnum tveir, en það virkar jú eins.

Til þess að segja ykkur aðeins hvað hlutirnir kosta, þá kemur smá upptalning:



  • Internet í klukkustund 1 soles = 20 ISK (og meira að segja frítt á hótelinu okkar)

  • Skinkuhorn með miklum osti og skinku 1 soles = 20 ISK

  • Rauðvínsglas á matsölustað 10 soles = 200 ISK

  • Nudd í tíu mínútur 10 soles = 200 ISK

  • Filet mignon 200 gr á fínu steikhúsi 30 soles = 600 ISK

  • Gos á matsölustað 3-4 soles = 60-80 ISK

  • Leigubíll frá miðbæ á hótel (20 mín) 8 soles = 160 ISK

Það er sem sagt allt ódýrt hér sem er HRIKALEGA gaman, nema reyndar innfluttar tæknivörur. Það er ekki gott fyrir okkur núna enda að reyna að bæta úr cameru-leysi.

Það er alveg ótrúlegt að vera á stað þar sem maður fær á tilfinninguna að maður sé að græða þegar maður er að eyða... svipað og þegar konur fara á útsölur og finna eitthvað sem þær þurfa ekki, kaupa síðan nokkur stykki því þær eru að græða svo mikið. Nema hvað núna erum við að tala um mat sem við þurfum hvort sem er að kaupa og þá er þetta gríðarlega gaman.

Lima hefur s.s. verðlagsvinninginn hingað til (London vs. Lima) varðandi allt nema tec-dót.

hyski skrifaði 3:16 EH, í PeruLima | Hjal (3)

Myndavelin er glotud

Myndavelin er glotud, henni var stolid ur vasa minum (SK) a logregluhatidinni i gaer. Thad er bot i mali ad vid hofum lika videoupptokuvel, thannig ad vid eigum til eitthvad af thessari skemmtilegu hatid a stafraenu formi.

Vid Hjordis hofum alltaf att thann draum ad sja mumiur og bregda a leik med theim, thennan draum letum vid raetast a British Museum um daginn. Tokum margar myndir af okkur i snidugum stellingum med vinum okkar mumiunum... vonandi ad thjofurinn komi til med ad hafa gaman af.

Shit happens, hvad aetli TM segi?
Verst thetta med myndirnar. Best ad therra tarin og haetta thessu vaeli.

Btw.
Folkid herna er mjog vinalegt :)

hyski skrifaði 2:57 EH, í Peru | Hjal (8)

ágúst 30, 2005

Líma - Perú

Nú erum við stödd í Lima, Perú. Ferðalagið hingað var frekar langt en þjónustan í flugvélinni var góð og fengum við tvisvar mat. Maturinn var það helvíti góður að gott ef ekki að hann nái topp þremur af flugvélamat fyrr og síðar.

Annars lentum við hérna í gærkvöldið og tókum leigubíl á hótelið. Það var strax frekar mikil upplifun að vera í leigubílnum á leiðinni því umferðin var alveg rosaleg, allir að flauta og keyra frekar svínslega. Síðan var áberandi mikið af fólki sem stóð alveg við götuna annað hvort að bíða eftir strætó eða selja eitthvað. En það var ekki þessi venjulegi strætó sem við þekkjum sem var að sækja fólkið heldur svona sendibíll (samt með gluggum), alveg eldgamlir bílar. Það var allt morandi í svona bílum, allir troðfullir af fólki, sumir með 10-15 manns.

En eins og sannir Íslendingar hentum við töskunum okkar uppá hótel og löbbuðum beint í næsta MOLL... hehe en ok svona okkur til varnar þá var þetta nú ekkert alveg venjulegt moll og við fórum nú bara til þess að fá okkur eitthvað að borða. En við þurftum að labba niður tvær götur frá hótelinu til þess að komast í þetta moll og samkvæmt kortinu sem við vorum með átti þetta moll að blasa við okkur þegar að við kæmum við endann á einni götu við sjóinn. Þegar að við komum þangað sáum við ekkert moll og skildum ekkert í þessu þannig að við spurðum lögreglumann. Hann benti okkur á að labba niður tröppur og þá sáum við að þetta var svona úti-moll sem var í klettunum og það þurfti að labba niður til að komast að því.

Í dag vöknuðum við síðan eldsnemma og fengum hótelið til að panta fyrir okkur leigubíl niðurí bæ, því þegar að við sögðumst ætla að labba hlóu þeir bara að okkur. Leigubíllin reyndist vera jafn gamall leigubílsstjóranum, en hann var eldri en sólin. Engin belti afturí og við erum bæði sannfærð um að þessi bíll sé að syngja sitt síðasta.

Við vorum svo heppin að þegar að við komum niðrí bæ var rosalega mikið af fólki hérna og við sáum strax að það var einhver hátíð í gangi. Þegar að við spurðum kom í ljós að þetta er lögregluhátíð.

En það er eitt frekar merkilegt við að vera hér og það er það að fólk horfir alveg rosalega mikið á okkur, gjörsamlega glápir. Síðan er rosalega mikið af svona unglingsstelpum að taka þátt í þessari lögregluhátíð og eru í einhversskonar skólabúningum. Nema hvað mikið af þessum stelpum eru alveg óhræddar við að horfa á okkur, bjóða okkur velkomin til Perú og flissa. Síðan lentum við í því áðan að við löbbuðum frá aðaltorginu niður eina götu og einn svona stelpnahópur labbaði á eftir okkur, flissandi og voru greinilega að reyna að mana hverja aðra í að tala við okkur. Endaði þannig að þær hlupu framfyrir okkur til að stoppa okkur, spurðum hvað við hétum og spurðu líka eitthvað meira sem við skildum ekki. En það er alveg ótrúlegt hvað fáir skilja ensku hér.

Stemmingin hérna hjá okkur er annars bara frábær.

hyski skrifaði 4:17 EH, í Peru | Hjal (8)

ágúst 28, 2005

London

Nu erum vid i London i sol og blidu (amk. 20 stig).

Sottum alla flugmidana a ferdaskrifstofuna adan og kiktum sidan i Covent Garden.

Vid akvadum ad taka forskot a saeluna og skoda menningu hinna ymsu landa. Thad gerdum vid med thvi ad kikja i British Museum. Vid einbeittum okkur ad Afriku og Asiu. Letum gamlan draum raetast og skodudum mumiur, thaer voru ekkert sma hressar :)

Nu erum vid a Oxfordstraeti ad rolta um og skoda. Sidan er eina vitid ad hvilast thar sem vid eigum 16 og halfs tima ferdalag fyrir hondum i nott.

hyski skrifaði 1:27 EH, í London | Hjal (5)

ágúst 27, 2005

Nú er komið að því !

Eftir klukkutíma förum við af stað með flugrútunni til Keflavíkur og þriggja mánaða ferðalagið okkar hefst. Ferðinni er heitið til London í dag en þangað förum við í tveggja daga borgarferð og sækjum flugmiðana okkar, en við bókuðum flugin hjá Breskri ferðaskrifstofu, STA travel. Á mánudaginn fljúgum við síðan til Perú í Suður-Ameríku.

Við erum orðin alveg ótrúlega spennt, búin að pakka öllu sem við munum eftir en trúum því samt varla að það sé komið að þessu.

hyski skrifaði 11:08 FH, í | Hjal (2)

ágúst 23, 2005

Koma útlitinu í gang

Vonandi að þetta fari að skríða saman.

hyski skrifaði 12:06 FH, í | Hjal (3)